Orlofshús

Akureyri – íbúðir

Norðurland – Allt árið

  • Ein vika30.121 kr
  • Ein helgi 16.909 kr
  • Komutími 17:00
  • Brottför 12:00

Húsnæði

5 hús 50m2 2 herbergi 4 svefnpláss

Aðstaða

  • Sjónvarp
  • Gasgrill
  • Örbylgjuofn
  • Barnarúm
  • Barnastóll
  • Þvottavél
  • Þurrkari
  • Þráðlaust net

Lýsing

Íbúðirnar eru í Furulundi 8 og 10. Í íbúðunum eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhús með borðkrók og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss er fyrir fjóra ásamt auka dýnu. Sængur og koddar eru fyrir fimm. Allur helsti útbúnaður fylgir þ.e. sjónvarp, ísskápur, eldavél, örbylgjuofn og gasgrill. Einnig öll ræstiefni og áhöld. Nettenging er í húsunum.

Sjá skilmála

Upplýsingar

Lyklar eru afhentir hjá Securitas, Tryggvabraut 10, Akureyri, til að sjá staðsetningu á korti smellið hér.

Leigutaki einn getur sótt lykla með framvísun leigusamnings og þarf einnig að skila lyklinum þangað aftur.

Hægt er að leigja rúmfatnað og kaupa þrif hjá Securitas Akureyri.

ATH. GÆLUDÝR ERU BÖNNUÐ.

Leiga

Vikuverð 28.000 kr. –  Helgarverð, 3 nætur 18.500 kr.

Annað

Akureyri iðar af mannlífi allan ársins hring. Í bænum búa um 18.000 manns og er hann sá langfjölmennasti utan höfuðborgarsvæðisins, miðstöð athafnalífs og þjónustu fyrir allt Norðurland.

Frá Akureyri er stutt í margar helstu náttúruperlur landsins og bærinn sjálfur er vinsæll áfangastaður um lengri eða skemmri tíma. Akureyri er vinsæll ferðamannastaður og fjölmargir heimsækja bæinn ár hvert. Frá Reykjavík er tæplega 5 klst. akstur til Akureyrar.  

Tenglar

www.visitakureyri.is

Skoða á google maps: