Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna

Dagskrá

Hlé á dagskrá. Verið er að undirbúa dagskrá næsta hausts. sjá nánar hér


Efling-stéttarfélag hefur fylgst vel með þróun á vinnumarkaðnum undanfarna mánuði og leitast við að aðstoða það fólk sem nú er tímabundið án atvinnu. Félagið hefur farið yfir alla þjónustu og úrræði sem félagið býr yfir með það að markmiði að réttindi þessara félagsmanna verði tryggð eftir því sem unnt er. Mikið fræðslustarf er á boðstólum hjá Eflingu og samstarfsaðilum og er það sérstakt markmið að hafa nám sem sveigjanlegast og opnast fyrir fólk í atvinnuleit, hvort sem er um starfsmenntun eða annað nám að ræða. Þá hafa reglur sjúkrasjóðs, orlofssjóðs og önnur starfsemi félagsins verið skoðaðar sérstaklega með það að markmiði að styrkja fólk í atvinnuleit.


Ef félagsmenn verða atvinnulausir ber viðkomandi að skrá sig hjá Vinnumálastofnun -Vinnumiðlun - höfuðborgarsvæðisins sem er staðsett að Kringlunni 1.
Mundu eftir að skrá þig sem fyrst hjá Vinnumiðlun svo þú tapir ekki réttindum.
Vinnumálastofnun ákvarðar rétt til  atvinnuleysisbóta og missi bóta.
Allar ákvarðanir Vinnumálastofnunar er hægt að kæra til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta.




Á þessari síðu má finna upplýsingar fyrir umsækjendur atvinnuleysisbóta ásamt öðru er tengist atvinnu eða atvinnumissi.  



betri_tid_logo 

Betri tíð - upplýsingatorg fyrir atvinnuleitendur en þar er að finna hagnýtar upplýsingar fyrir fólk í atvinnuleit og fyrir alla aðra sem leita leiða til þess að kljást við kreppuástandið.





 

Öflugur fræðsluvefur um allt milli hims og jarðar ásamt upplýsingum um starf Rauða krossins sem fólk getur tekið þátt í.



Þessi vefur hefur að geyma upplýsingar um fjölbreytt tungumála- og frístundanámskeið sem Mímir heldur ásamt starfstengdum námskeiðum og náms- og starfsráðgjöf.



 

Vefurinn Menntatorg er ætlaður þeim sem eru 20 ára og eldri, hafa ekki lokið framhaldsskóla, eru atvinnulaus og eru að leita sér að stuttu námi eða námskeiði. 



hlutverkasetur

Vefurinn hefur að geyma upplýsingar um  ýmsa starfsemi fyrir atvinnuleitendur á vegum Hlutverkasetursins, m.a. ókeypis námskeið.







Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is