Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna
Nýjustu fréttir
 
02. febrúar 2012

gallup-01-01                                                                      Sveitarfélögin

Eingreiðsla upp á 25.000 kr.

Félagsmenn Eflingar sem vinna hjá sveitarfélögunum eiga að fá greidda sérstaka eingreiðslu 1. febrúar 2012 upp á 25.000 kr. fyrir fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall 1. febrúar 2012. Þetta á einnig við hjá þeim sem taka mið af samningi sveitarfélaganna.



02. febrúar 2012

islenska_kronan                                                Styrkir hækka í sjúkrasjóði

Frá og með 1. janúar 2012 hækka eftirfarandi styrkir hjá Sjúkrasjóði Eflingar til að koma til móts við sjóðfélaga vegna  hækkana hjá meðferðaraðilum:  Hækkanirnar nú nema allt að 100%.



01. febrúar 2012

heimasida_gallup                              Launahækkanir á almenna markaðnum

Launahækkanir á almenna markaðnum taka gildi frá og með deginum í dag 1. febrúar 2012. Launataxtar hækka um 11.000 kr. og almenn laun ásamt kjaratengdum liðum hækka um 3,5 %. 
Nýjan launataxta má nálgast hér.

Kauptrygging og kaupliðir hjá sjómönnum hækka einnig um 3,5 % frá 1. febrúar 2012.
Kaupskrána má nálgast hér.

Launabreytingar hjá ríki, hjúkrunarheimilum og sveitarfélögum taka gildi 1. mars næst komandi.



01. febrúar 2012

Grunnmenntaskólinn

Tilvalinn grunnur að meira námi

Markmið námskeiðsins er að byggja upp grunn í íslensku, ensku, stærðfræði og tölvum, þjálfa sjálfstæð vinnubrögð og að auka sjálfstraust til náms.

Næsta námskeið hefst 6. febrúar og því lýkur 3. maí. Kennt er frá mánudegi til föstudags frá kl. 12:50 - 16:30 í Ofanleiti 2. Nánari upplýsingar í síma 580-1800 hjá Mími símenntun.



31. janúar 2012

akureyri                                    Laus íbúð á Akureyri

Það er laus íbúð á Akureyri helgina 10. febrúar n.k. Áhugasamir hafi samband við Eflingu stéttarfélag í síma 510-7500



27. janúar 2012

fundur_leik2

Nýtt námskeið hjá Eflingu

Nú lærum við á tryggingarnar!

Námskeið sem borgar sig

Stutt, hnitmiðað námskeið þar sem farið er yfir ýmislegt sem tengist tryggingarmálum.  Námskeiðið er tvisvar sinnum tveir tímar.  Fyrra kvöldið er 31. janúar kl. 19.30-21.30 og seinna kvöldið er þann 28. febrúar á sama tíma.  Námskeiðið er haldið í húsnæði Eflingar stéttarfélags, Sætúni 1, 4. hæð.
Fyrra kvöldið er farið yfir ýmislegt sem tengist tryggingamálum og þátttakendur fá leiðbeiningar um hvernig þeir geta aflað sér tilboða í tryggingar sínar hjá hinum ýmsu tryggingafélögum ásamt því að gera tilboðsbeiðni til að senda á Tryggingafélögin.  Seinna kvöldið verður síðan farið yfir tilboðin sem hafa borist og verð og innihald borið saman þannig að hægt sé að nýta sér hagstæðasta tilboðið.



27. janúar 2012

lifid_er_fullt_af_tilviljunum                                                                            Sambýlið Breiðabólsstaður

Lífið er fullt af tilviljunum

- segja hjónin Pétur Ottósson og Ólöf Haraldsdóttir

Pétur og Ólöf hafa búið á bænum Breiðabólsstað í 20 ár og hefur starfsemin þar tekið ýmsum breytingum í gegnum árin. Þau byrjuðu á að taka til sín börn í sumarvist en reka nú sambýli fyrir geðfatlaða menn ásamt því að hafa ávallt stundað einhvern búrekstur samhliða.



25. janúar 2012

mikil_samstada_medal_sjomanna

Hækkun á kauptryggingu og kaupliðum hjá sjómönnum

Samkomulag hefur náðst á milli LÍÚ og samtaka sjómanna um að hækka kauptryggingu og aðra kaupliði hjá sjómönnum um sömu prósentuhækkun og samið var um á almenna vinnumarkaðnum.



24. janúar 2012

magnusnorddahl                                                  Vernd og réttarstaða uppljóstrara

Eftir Magnús M. Norðdahl hrl., lögfræðing ASÍ.

Uppljóstrarar njóta sérstakrar verndar í ráðningarsambandi skv. ákvæðum 10. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) sem fjallar um verndun tjáningarfrelsis. Það var staðfest með dómi Mannréttindadómstóls Evrópu þann 21.7. 2011 þar sem fyrirvaralaus uppsögn hjúkrunarfræðings, sem kært hafði hjúkrunarheimili þar sem hún starfaði fyrir vanrækslu, var dæmd ólögmæt og skaðabótaskyld.



23. janúar 2012

asi

Opinn fundur ASÍ

Hvað getum við lært af Dönum?

Þriðjudaginn 24. janúar stendur Alþýðusamband Íslands fyrir morgunverðarfundi um húsnæðismál.  Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá kl. 8-10. Yfirskrift fundarins er: Hvað getum við lært af Dönum? Hvernig má lækka húsnæðisvexti heimilanna? Aðalræðumaður fundarins er Peter Jayaswal aðstoðarframkvæmdastjóri samtaka húsnæðislánveitenda í Danmörku.



20. janúar 2012

samthykkir_umbod_til_framlengingar_samninga                                                                                                                                        Samninganefnd Flóafélaganna samþykkir umboð til framlengingar samninga

Kjarasamningar framlengdir

Karasamningur á milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins mun vera áfram í gildi en samninganefnd ASÍ ákvað í dag að segja ekki upp gildandi kjarasamningi. Launabreytingar munu því taka gildi þann 1. febrúar n.k.  og  launataxtar hækka um 11.000 kr. og almenn laun hækka um 3,5 %.

Yfirlýsingu samninganefndar ASÍ má sjá hér.

Launatöflu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins frá 1. febrúar 2012 má sjá hér.



19. janúar 2012

Fundur  samninganefndar Flóafélaganna

Samþykkir umboð til framlengingar samninga

Mikil óánægja með stjórnvöld á fundinum

Samninganefnd Flóafélaganna, Eflingar, Hlífar og VSFK samþykkti í gærkvöldi 18. janúar ´12 með einróma ályktun þar sem umboð er veitt til framlengingar kjarasamninganna. Í ályktuninni eru stjórnvöld harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki staðið við sinn hluta af fyrirheitum sem veitt voru við gerð kjarasamninganna. Á fundinum kom fram mikil gagnrýni á núverandi stjórnvöld vegna vanefnda ríkisstjórnarinnar  en fundurinn taldi engar forsendur til að slíta kjarasamningi við atvinnurekendur þar sem þeir hafa staðið við ákvæði samninganna.
Ályktunin er meðfylgjandi ásamt samþykkt um umboð til framlengingar samninganna.



17. janúar 2012

tryggvi                                                                                 Átak á vegum ASÍ, SA og RSK skilar árangri

Harðari viðurlög við alvarlegri brotum

- segir Tryggvi Marteinsson

Ég tel að þetta starf hafi skilað miklum árangri, segir Tryggvi Marteinsson, starfsmaður Eflingar sem hefur tekið þátt í átaki Ríkisskattstjóra, ASÍ og SA á undanförnum vikum. Nú síðast var farið á veitingastaði í miðbæ Reykjavíkur í eftirlitsferð og það er alveg ljóst að hér er á ferðinni þarft framtak til að hér geti þróast heilbrigðara atvinnulíf. Það sem nú þarf að gerast er að hægt sé að beita viðurlögum strax á vinnustöðum þar sem alvarleg brot eru í gangi svo sem þegar fyrirtæki skila ekki vörslusköttum, segir hann. Ríkisskattstjóri á að geta lokað fyrirtækjum í slíkum tilvikum.  Til þess þarf að breyta lögum, segir Tryggvi og Ríkisskattstjóri hefur fullan stuðning okkar megin í verkalýðshreyfingunni fyrir þeirri breytingu.



13. janúar 2012

langflestir_vilja_sameiginlega_launastefnu                                                                               Viðræður um forsendur kjarasamninga

- Niðurstöðu að vænta 20. janúar


Fyrirspurnir eru þegar farnar að berast Eflingu um framhald núgildandi kjarasamninga. Þessa dagana standa einmitt yfir viðræður meðal aðildarfélaga ASÍ um  framhald kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins.  Gert er ráð fyrir því að sameiginleg forsendunefnd ASÍ og SA skili niðurstöðu ekki síðar en 20. janúar nk.   Samninganefnd Flóabandalagsins þ.e. Efling, Hlíf í Hafnarfirði og VSKF í Keflavík fundar 18. janúar næst komandi.  Það verður því ekki fyrr en í lok þeirra viðræðna sem að  niðurstöðu verður að vænta hvernig fer með þær launabreytingar sem taka eiga gildi á almennum markaði 1. febrúar 2012. 
 



13. janúar 2012

sigurros                                                                                          Hvað viltu læra? – Í boði Eflingar

Margir stíga fyrstu skrefin hjá okkur

- segir Sigurrós Krisinsdóttir

Það eru mörg spennandi tækifæri til náms hjá Eflingu, bæði hjá félaginu sjálfu og námi sem við skipuleggjum með samstarfsaðilum. Starf okkar í menntamálum er eitt af því sem sem einkennir starfsemi Eflingar og þúsundir félagsmanna verða varir við, segir Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar. Við erum mjög stolt af því að Efling varðar oft fyrstu skrefin inn í að efla fólk í starfi með námskeiðum og fræðslustarfi en margir halda síðan áfram í frekara námi. Við erum stöðugt að endurnýja okkur og nú er komið að námi fyrir heyrnarlausa einstaklinga en það verkefni hefur fengið nafnið Döff-menntaskólinn. Spurningin hjá Eflingu er ekki hvort þú vilt styrkja þig, heldur hvað þú vilt læra, segir Sigurrós.



09. janúar 2012

olafurdarri                                                                                   Ólafur Darri Andrason

Óstöðugur gjaldmiðill kallar á háa vexti

Óstöðugur gjaldmiðill er ein megin orsök þess að vextir eru miklu hærri á Íslandi en í nágrannalöndunum. Þessir háu vextir hafa margvísleg áhrif á okkur.



06. janúar 2012

siggibessa_01                                                                                Leiðari 1.tbl. 2012                                     

Siðlaus skattlagning lífeyriseignar

segir Sigurður Bessason

Umræða undanfarinna vikna um skattlagningu lífeyriseignar sjóðfélaga í sameignar- og séreignarsjóðum landsmanna hefur dregið fram skil í afstöðu annars vegar stjórnmálamanna og hins vegar forystumanna atvinnulífsins sem staðið hafa að uppbyggingu lífeyriseignar sjóðfélaga á almennum markaði.



27. desember 2011

siggi_getum_ekki_saett_okkur_vid_atvinnuleysid                                       Getum ekki sætt okkur við atvinnuleysið

- segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar

Við getum ekki og eigum ekki að sætta okkur við þetta atvinnuleysi. Það tekur ekki bara frá okkur möguleikann til að lifa mannsæmandi lífi.  Það eyðileggur sjálfsmynd okkar og trú á framtíðina. Nú erum við að sjá fjórða ár í kreppu og á þriðja þúsund félagsmanna í Eflingu eru atvinnulausir og þar af eru langtímaatvinnulausir stækkandi hópur. Við sjáum ýmis merki þess að fjárhagur margra fjölskyldna sé í úlfakreppu, því mjög hafi þrengt að á síðustu misserum. Í nýrri viðhorfskönnun fjölgar þeim sem draga við sig í útgjöldum s.s. í ferðalögum, fatnaði og tómstundum. Alvarlegast er að fjöldi fólks dregur við sig í matarinnkaupum, lyfjakostnaði og heilbrigðisþjónustu. Þetta segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar í samtali við Fréttablað félagsins. Ég hef miklar áhyggjur af því að samfélag okkar sé að breytast og fólk fari að sætta sig við atvinnuleysið sem hluta af lífinu. Það má ekki gerast og nú verða stjórnvöld og fyrirtækin að snúa af þessari braut, segir hann.



21. desember 2011

Mikilvægt að greiða áfram séreignarsparnað

-Frádráttarbært iðgjald launamanns lækkar úr 4% í 2%

Nú um áramótin ganga í gegn breytingar á lögum er varða skattlagningu lífeyrissparnaðar. Frádráttarbært viðbótariðgjald launamanns sem ráðstafað er í séreignarsparnað lækkar við þessa breytingu úr 4% í 2% af launum. Haldi launamaður áfram að greiða 4% framlag í viðbótarlífeyrissparnað mun það leiða til tvísköttunar á þessum hluta iðgjaldsins. Mótframlag atvinnurekenda verður áfram 2%. Þá er mikilvægt að benda á að ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af þessum sparnaði eins og af hefðbundnum innlánsreikningum.  Launafólki er því eindregið ráðlagt að halda áfram með þann hluta séreignarsparnaðar sem ekki er tvískattaðar þar sem hin frádráttarbæru iðgjöld verða með hagkvæmustu sparnaðarleiðum sem gefast þrátt fyrir þessa breytingu.



16. desember 2011

jolaball_09_01

Jólaball Eflingar stéttarfélags verður haldið fimmtudaginn 29. desember í Valsheimilinu Hlíðarenda kl. 16:30.
Húsið opnar kl.16:00.





Vissir þú?

















Karl Ó. Karlsson

 
Anna Lilja Sigurðardóttir 

Lögmenn Eflingar-stéttarfélags eru til viðtals á skrifstofu félagsins á þriðjudögum milli kl. 13.00 og 16.00. Það eru lögmennirnir Karl Ó. Karlsson og Anna Lilja Sigurðardóttir  frá lögmannsstofunni  LAG lögmenn  sem eru til aðstoðar. Ekki þarf að panta tíma fyrirfram. Það nægir að mæta á skrifstofuna á þessum tíma.


Í kjarasamningum Eflingar er ekkert til sem heitir jafnaðarkaup. Hugtakið jafnaðarkaup þýðir að jafnað er saman dagvinnu og yfirvinnu og fundið meðalkaup á milli dagvinnukaups og yfirvinnukaups í samræmi við hlutfall unnins tíma í dagvinnu og yfirvinnu. Það er því ekki hægt að semja um jafnaðarkaup ef bara er unnið á kvöldin og um helgar.




Á döfinni

Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500  |  fax: 510 7501  |   efling@efling.is