Við krefjumst réttlætis!
Nú í aðdraganda samningaviðræðna um kjarasamninga á vinnumarkaði vaknar eðlilega spurningin um félagslegt réttlæti í landinu. Kjarasamningar eru í eðli sínu tæki til að bæta lífskjör og jafna kjör í þjóðfélaginu.
Á einu vetfangi haustið 2008 breyttust kjör á Íslandi úr því að vera bærileg í það að verða óþolandi. Kaupmáttur féll eins og steinn í vatni, lán almennings í landinu hækkuðu mánuð eftir mánuð þannig að fólk horfði á eignir sínar brenna upp í verðbólgu sem engu eirði. Stjórnvöld stóðu vörð um sparifé landsmanna en hugsuðu minna um hina sem horfðu á eftir íbúðum sínum og húseignum í eld verðbólgunnar. Fjöldi manna sem bar ábyrgð á hruninu og tókst að komast undan með kúlulán og jafnvel hundruða milljóna hagnað í bankaviðskiptum er ennþá frjálst ferða sinna.

Endilega ef þið hafið hugsað ykkur að skoða Eyjarnar fögru hafið samband við skrifstofu í síma 510 7500 og pantið í tíma.“
Skoðar þú launaseðilinn þinn vel þegar þú tekur við honum um hver mánaðamót. Það er nú mikilvægara en oft áður að temja sér að skoða launaseðilinn vel og fara vel yfir þær upplýsingar sem þar eru til að tryggja að farið sé eftir kjarasamningi, ráðningarsamningum og lögum. Launaseðlar geta verið mismunandi í uppsetningu eftir fyrirtækjum og stofnunum en þar eru lykilatriði sem ætíð eiga að vera í lagi.
Mikilvægt er að allar greiðslur séu sundurliðaðar og skýr skil á milli dagvinnu, yfirvinnu og vinnu á stórhátíðisdögum. Þá er mikilvægt að frádráttarliðir séu vel afmarkaðir og sundurliðaðir. Einnig ber atvinnurekanda að sýna uppsafnað orlof og frítökurétt ef um hann er að ræða.

Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags haldinn 29. apríl 2010 veitir stjórn félagsins heimild til að ganga til sameiningarviðræðna við Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði. Jafnframt er heimilt að ganga til viðræðna við önnur félög á svæðinu óski þau eftir viðræðum. Niðurstöður viðræðna verði lagðar fyrir trúnaðarráð og félagsfund í Eflingu þegar þær liggja fyrir.

Þeir sem eru eldri hafa aukið drykkju sína mjög
Flestir þekkja starf SÁÁ í gegnum vinnufélaga, ættingja og vini sem hafa notið góðs af starfi samtakanna. Færri vita um afskaplega mikilvægt starf samtakanna með ungu fólki. Sérstaklega má þjónustu sem er þannig að hægt er að hafa samband vegna ungs fólks í fíkniefnavanda og leita úrlausna með samtökunum, sagði Sigurður Bessason í stuttu ávarpi á aðalfundi Eflingar þegar hann afhenti Þórarni Tyrfingssyni, formanni SÁÁ aðalstyrk Eflingar á þessu ári. Þórarinn sagði að gott væri að eiga slíka bakhjarla sem Eflingu en alla tíð hefði SÁÁ átt góða að allt frá þjóðarvakningunni þegar samtökin voru stofnuð árið 1977.
Í febrúar hóf Efling stéttarfélag að hafa markvisst samband við félagsmenn sína sem eru í atvinnuleit og hefur nú haft samband við yfir 400 félagsmenn og haldið allmarga fundi og kynningar. Á fundunum hefur verið farið yfir ýmsa þjónustu félagsins og kosti sem bjóðast fólki í atvinnuleit. Fram kemur á fundunum að ánægja er með þetta framtak og er vel mætt á fundina.
Atvinnuleitendur hafa verið mjög ánægðir með þetta framtak félagsins hafa ýmis mál verið rædd á fundunum og mörg sjónarmið komið fram. Einnig hefur verið kannaður vilji þeirra til námskeiðshalds eða annarra úrræða sem félagið hefur möguleika á að bjóða upp á. Margir hafa í framhaldi farið og nýtt sér þau námsúrræði og námskeið sem í boði eru og pantað tíma hjá náms-og starfsráðgjafanum, sótt um styrki í fræðslusjóðnum og sjúkrasjóðnum. Er því full ástæða til að halda þessum fundum áfram og halda góðum tengslum við félagsmenn okkar sem eru í atvinnuleit.
Hér er um að ræða síðasta áfangann í launahækkunum í núgildandi kjarasamningi SA og Eflingar sem er aðgengilegur á heimsíðu félagsins ásamt launatöxtum undir kjarmál. Á síðasta ári hækkuðu launataxtar um 6.750 krónur þann 1. júlí 2009 og aftur þann 1. nóvember um sömu krónutölu kr. 6.750. 1. nóvember tók einnig 3,5% launaþróunartrygging gildi hjá þeim sem enga hækkun höfðu fengið frá 1. janúar 2009 og voru ekki á kauptaxta. Ef um hækkanir á launum var að ræða á þessu tímabili þá drógust þær frá 3,5%.
Samningurinn gildir til 30. nóvember á þessu ári en þá eru einnig aðrir kjarasamningar Eflingar lausir svo sem við ríki, sveitarfélög, hjúkrunarheimili og Reykjavíkurborg. Hliðstæð hækkun á launataxta gildir einnig frá 1. júní fyrir samninga Eflingar sem heyra undir opinbera samningssviðið en nánari upplýsingar má finna undir síðu kjaramála.

Dagurinn í dag er baráttudagur. Í dag minnumst við þess að allt sem launafólk þessa lands hefur náð fram, er fyrir vinnu, fórnir og dugnað okkar sjálfra. Á þessari stundu þurfum við sjálf að endurmeta stöðuna eftir eitt erfiðasta ár í sögu okkar. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis opnaði augu okkar endanlega fyrir sannleikanum.
Í landinu hefur þrifist spilling, spilling embættismanna, spilling stjórnmálamanna en síðast og ekki síst spilling í bankakerfi og auðhringjum sem eiga stóran þátt í því hvernig komið er. Við skulum ekki gleyma því að í kjölfarið hrundi fjármálakerfið hér á Íslandi með þeim afleiðingum sem við nú stöndum frammi fyrir.
Siðferði þessa tíma leyfði milljónagjafir til stjórnmálamanna, milljarða kúlulán til forsvarsmanna fjármálastofnana og stórfyrirtækja. Lán sem þeir ætluðu að græða á ef vel gengi en við verðum nú að borga, almenningur í landinu.


Upplýsingar um laus orlofshús á fyrstur kemur fyrstur fær 30. apríl 2010 má nú finna á síðu orlofssjóðs.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Breyting á reglugerð Sjúkrasjóðs
3. Tillaga um sameiningarviðræður við Vlf. Hlíf í Hafnarfirði og VSFK í Keflavík
4. Önnur mál
Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni að Sætúni 1 frá og með föstudeginum 23.apríl nk..
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Eflingar-stéttarfélags

Mikil aukning varð á umsóknum eins og við var búist eða rúmlega 30% milli ára. Vegna þess var framboð á húsum aukið verulega eins og áður hefur komið fram. Þá hefur sala Veiði- og Útilegukortsins farið afar vel af stað og óhætt að segja að kortin mælist vel fyrir. Enda er um frábæra kosti að ræða á mjög góðu verði.
Ýtarlegar upplýsingar um orlofshús, íbúðir og annað sem í boði er finna félagsmenn í orlofsblaði Eflingar sem nýlega kom út.
Anna Lilja Sigurðardóttir
Áslaug Björk Björnsdóttir
Lögmenn Eflingar-stéttarfélags eru til viðtals á skrifstofu félagsins á þriðjudögum milli kl. 13.00 og 16.00. Það eru lögmennirnir Karl Ó. Karlsson og Anna Lilja Sigurðardóttir frá lögmannsstofunni LAG lögmenn sem eru til aðstoðar. Ekki þarf að panta tíma fyrirfram. Það nægir að mæta á skrifstofuna á þessum tíma.
Í kjarasamningum Eflingar er ekkert til sem heitir jafnaðarkaup. Hugtakið jafnaðarkaup þýðir að jafnað er saman dagvinnu og yfirvinnu og fundið meðalkaup á milli dagvinnukaups og yfirvinnukaups í samræmi við hlutfall unnins tíma í dagvinnu og yfirvinnu. Það er því ekki hægt að semja um jafnaðarkaup ef bara er unnið á kvöldin og um helgar.