Á þessari síðu má finna upplýsingar fyrir umsækjendur atvinnuleysisbóta ásamt öðru er tengist atvinnu eða atvinnumissi.
Betri tíð - upplýsingatorg fyrir atvinnuleitendur en þar er að finna hagnýtar upplýsingar fyrir fólk í atvinnuleit og fyrir alla aðra sem leita leiða til þess að kljást við kreppuástandið.
Öflugur fræðsluvefur um allt milli hims og jarðar ásamt upplýsingum um starf Rauða krossins sem fólk getur tekið þátt í.
Þessi vefur hefur að geyma upplýsingar um fjölbreytt tungumála- og frístundanámskeið sem Mímir heldur ásamt starfstengdum námskeiðum og náms- og starfsráðgjöf.
Vefurinn Menntatorg er ætlaður þeim sem eru 20 ára og eldri, hafa ekki lokið framhaldsskóla, eru atvinnulaus og eru að leita sér að stuttu námi eða námskeiði.
Vefurinn hefur að geyma upplýsingar um ýmsa starfsemi fyrir atvinnuleitendur á vegum Hlutverkasetursins, m.a. ókeypis námskeið.