Finna

thjonustulidar_i_hveragerdi_hopmynd_030512

Þann 3. maí útskrifuðust níu félagsmenn Eflingar úr 80 stunda Þjónustuliðanámi. Nemendurnir eru starfsmenn Áss hjúkrunarheimilis og Heilsustofnunar í Hvergerði, allt konur. Bæði útskriftin og kennsla fóru fram í húsnæði Eflingar í Hveragerði. Fræðslunet suðurlands sá um kennsluna í samstarfi við Eflingu.

Þetta er fyrsta námskeiðið sem haldið er í Sal Eflingar-Stéttarfélags í Hveragerði síðan sameinigin varð 1.janúar 2009. Mikil ánægja var meðal nemenda og kennara með námið og aðstöðuna og var starfsmönnum Eflingar, þeim Jónu og Valdísi, sérstaklega þakkað fyrir góðar móttökur og undirbúning námsins. Ég vil lýsa ánægju minni með þetta framtak og rætt hefur verið um að fleiri námskeið fylgi í kjölfarið, þetta er bara byrjunin hér fyrir austan fjall, segir Jóna Sigríður starfsmaður Eflingar í Hveragerði.

Námskeiðið „Þjónustuliðar – grunnám” er ætlað þeim sem starfa við ræstingar, hreingerningar eða sótthreinsun,  starfa  í býtibúrum, borðstofum, kaffistofum, matsölum eða þvottahúsum.  Í Þjónustuliðanáminu er lögð áhersla á rétta líkamsbeitingu, meðferð efna af ýmsu tagi, hreinlæti og þjónustulund.

Vissir þú?


Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is