Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna

Um leikskólaliða

Faghópur leikskólaliða var stofnaður í maí 2008.  Faghópurinn er opinn öllum þeim sem hafa lokið eða eru í námi leikskólaliða  og eru starfandi eftir kjarasamningum Eflingar-stéttarfélags.
Fundir eru haldnir a.m.k. tvisvar á ári, ársfundir á vorin og fræðslufundir á haustin.
Leikskólaliðar innan Eflingar-stéttarfélags eru nú um 150 manns og tæplega 50 eru í leikskólaliðanámi.  Stærsti hópurinn starfar á leikskólum Reykjavíkurborgar en einnig starfar þó nokkuð stór hópur hjá einkareknum leikskólum. 
Flestir leikskólaliðar Eflingar hafa útskrifast frá Mími símenntun en einnig hefur ákveðinn hópur útskrifast úr Borgarholtsskóla.
Þá býður Mímir í samvinnu við Eflingu, framhaldsnám um börn með sérþarfir.



10. apríl 2012

arsfundur_leikskolalida_sigridur                                                                             Ársfundur faghóps leikskólaliða

Leikskólaliðum fjölgar stöðugt

Faghópur leikskólaliða í Eflingu-stéttafélagi hélt ársfund sinn mánudaginn 26. mars 2012. Kosning stjórnar fór fram þar sem Harpa Ásgeirsdóttir og Aðalbjörg Jóhannesdóttir buðu sig aftur fram til tveggja ára. Þar sem engin mótframboð voru var þetta samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Aðalbjörg Jóhannesdóttir fór yfir ársskýrslu leikskólaliða en faghópur leikskólaliða er nú að hefja sitt fimmta starfsár og hefur leikskólaliðum hjá Eflingu fjölgað stöðugt á þessum tíma. 


26. mars 2012

leikskolalidar_a                                                                               Faghópur leikskólaliða

Ársfundur

Faghópur leikskólaliða í Eflingu-stéttarfélagi heldur ársfund sinn mánudaginn 26. mars 2012. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Eflingar Sætúni 1 á 4. hæð og hefst kl. 20:00


27. desember 2011

fraedslufundur_leikskolalida_9                                                                     Fræðslufundur Faghóps leikskólaliða

Mikilvægt að fara ekki með vinnuna heim

Þann 9. nóvember sl. hélt faghópur leikskólaliða fræðslufund fyrir leikskólaliða. Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur var með erindi um mikilvægi þess að skilja á milli vinnunnar og einkalífs. Sigurrós kynnti niðurstöður Gallup könnunar og námskeið Mímis voru kynnt.


23. ágúst 2011

leikskolabruin_heillar_erna_bjork                                                                   Leikskólabrúin heillar

Hvet sem flesta að drífa í þessu

-segir Erna Björk Ásbjörnsdóttir


Það var góður hópur sem útskrifaðist af leikskólabrúnni í síðasta mánuði hjá Mími-Símenntun en ein af þeim sem lauk náminu var Erna Björk Ásbjörnsdóttir. Þetta var mjög skemmtilegt nám og samheldinn hópur, segir hún.

29. mars 2011

mun_haefari_til_ad_takast_a_vid_starfid                                                                  Framhaldsnám leikskólaliða um börn með sérþarfir

Mun hæfari til að takast á við starfið

- segir Svala Birna Sæbjörnsdóttir, leikskólaliði á Hlíðarenda við Laugarásveg

Ég er sannfærð um að við sem fórum í þetta framhaldsnám fyrir leikskólaliða um börn með sérþarfir erum mun hæfari til að takast á við starfið á leikskólunum, segir Svala Birna Sæbjörnsdóttir, leikskólaliði á Leikskólanum Hlíðarenda við Laugarásveg. Hún gaf sér tíma til að ræða við Eflingarblaðið um þetta áhugaverða nám leikskólaliða. 


17. nóvember 2010

fundur_leikskolal                 Fræðslufundur faghóps leikskólaliða

Styrkur fyrir sálina!

Menntun og reynsla leikakólaliða verður að meta til launa

Við megum ekki bregðast sjálfum okkur með því að virða ekki eigin þarfir, drauma og langanir.  Hvert og eitt okkar þurfum við að rækta það sem við gerum best.  Við þurfum að trúa á okkur sjálf þó að það þýði líka að við förum út fyrir þægindahringinn. Þannig eru við besti styrkur fyrir sálina, sagði Sigríður Hulda Jónsdóttir, forstöðumaður stúdentaþjónustu HR á fundi með leikskólaliðum í vikunni.  Vel var mætt á fundi faghóps leikskólaliðanna 9. nóvember en þar fór Harpa Ólafsdóttir forstöðumaður kjaramálasviðs Eflingar  einnig yfir kjarasamningana framundan.  Leikskólaliðarnir komu fram með ýmsar áherslur sem nýtast munu í kjarasamningsviðræðunum.





Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500  |  fax: 510 7501  |  efling@efling.is