Fréttir:
Um er að ræða 120 stunda nám í íslensku, samfélagsfræði, tölvunotkun og sjálfstyrkingu. Það er hugsað fyrir útlendinga sem hafa hug á því að setjast hér að og hafa þegar grunnþekkingu á íslensku. Auk þess að vera hugsað sem áframhaldandi nám í íslensku verður leitast við að tvinna þann hluta skólans saman við aðra þætti námsins. Þannig er til að mynda ráðgert að heimsækja opinberar stofnanir eins og Borgarbókasafnið, fara í leikhús á íslenska leiksýningu auk þess að fræða nemendur um sögu lands vors og þjóðar. Í tölvunáminu verður tekið mið af þekkingu nemenda en gert er ráð fyrir að námið þar beinist mest að Microsoft Office notkun auk upplýsingaöflunar á netinu.
Landnemaskólinn hefur hlotið mikið lof þeirra sem hann hafa sótt og er í stöðugri þróun. Þar er unnið í smáum hópum sem þýðir að hver nemandi fær nægan tíma frá kennara. Landnemaskólinn fer af stað 12. janúar og er kenndur á mánudags- og miðvikudagsmorgna milli kl. 9:00 og 12:00.