Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna
Grunnmenntaskólinn

Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám fyrir fólk sem hefur stutta skólagöngu að baki. Meðal námsgreina eru íslenska, enska, stærðfræði, sjálfstyrking, samskipti og tölvur. Engin próf eru tekin en námsmat fer fram með verkefnavinnu, æfingum og símati. Námið er metið til allt að 24 eininga í framhaldsskóla.

Grunnmenntaskóli (Döffmenntaskólinn): Byrjar 12. janúar og lýkur 28. júní  2012.  Kennt er á þriðjud., fimmtud. og laugardögum frá kl. 16:30 til 20:15 og á laugardögum frá kl. 9:10 til 12:50 

Grunnmenntaskóli: Byrjar 9. janúar og lýkur 28. mars  2012.  Kennt er alla virka daga frá kl.  8:30 til 12:10

Grunnmenntaskólinn: Byrjar 6. febrúar og lýkur 4. maí 2012. Kennt er alla virka daga frá kl. 12:50 til 16:30

Kennsla fer fram að Ofanleiti 2.

Skráning á www.mimir.is eða í síma 580 1800

Hægt er að sækja um styrk hjá starfsmenntasjóðum Eflingar fyrir skólagjöldum.



Vissir þú?


Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is