Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna
Menntastoðir

Námsmarkmið Menntastoða er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni. Í náminu er lögð áhersla á að nemendur læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námið í Menntastoðum tekur um 6 mánuði, er dagskóli fimm daga vikunnar.

Kennsluhættir miðast við þarfir fullorðinna einstaklinga og gefur námið allt að 50 einingar.  Helstu námsgreinar eru stærðfræði, íslenska, enska, danska og upplýsingatækni. Hluti kennslu í Menntastoðum byggist á tölvum og því er nemendum ráðlagt að verða sér út um fartölvu með Office 2007 hugbúnaði.

Menntastoðir: Byrja 16. janúar og þeim lýkur 16. júní  2012. Kennt er alla virka daga frá kl. 8:30 til 15:00

Kennsla fer fram hjá Mímir að Ofanleiti 2

Skráning er á www.mimir.is eða í síma 580 1808

Hægt er að sækja um styrk hjá Eflingu fyrir skólagjöldum.



Vissir þú?


Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is