Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna

Starfsmenntunar- og starfsþróunarsjóður Eflingar og Reykjavíkurborgar

Upphæð styrks

Greitt er að hámarki kr. 60.000 á ári til einstaklings. 

Almennt nám er styrkt að hámarki sem nemur 75% af reikningi.

Ef nám telst starfstengt er greitt allt að 90% af reikningi.

Íslenskunám fyrir útlendinga er styrkt allt að 90% af reikningi.

Tómstundanám er styrkt að hámarki kr. 18.000 og aldrei meira en 50% af reikningi.

Félagsmenn sem eiga við námsörðugleika að stríða geta sótt um styrk að hámarki sem nemur 75% af reikningi vegna kaupa á hjálpartækjum til stuðnings við lestur og skrift.

Veittir eru  námsferðastyrkir að hámarki kr. 30.000 vegna starfstengdra námsferða. Námsferðir eru fyrst styrktar eftir þriggja ára samfellda félagsaðild, síðan á þriggja ára fresti. Námsferðastyrkir greiðast vegna ferðakostnaðar og kostnaðar við gistingu. Með umsókn þarf að fylgja ferðaáætlun, sundurgreining kostnaðar, markmið og mat yfirmanns á því hvernig námið mun nýtast í starfi.

-Ekki mega líða meira en 12 mánuðir frá því að námi lýkur þar til að sótt er um endurgreiðslu.

-Tekið er við umsóknum til og með 20. hvers mánaðar og greitt er út fyrsta virka dag í mánuði. Greitt er inn á bankareikning viðkomandi.

Umsóknareyðublað er hægt að nálgast hér

Úthlutunarreglur einstaklingsstyrkja

  1. Félagsmaður sem unnið hefur samfellt í 6 mánuði af síðustu 12 og greitt félagsgjöld á þeim tíma, getur sótt um styrk til símenntunar/starfsnáms.
    Greitt er hlutfallslega fyrir fólk í hlutastörfum.
  2. Við ákvörðun upphæðar styrkja er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi eða hærra gefur fulla styrkupphæð. 
  3. Fylla þarf út umsóknareyðublað og skila á skrifstofu Eflingar. Það þarf að skila frumriti reiknings.
  4. Áunnin réttindi félagsmanna  haldast óbreytt þrátt fyrir flutning milli  fræðslusjóða Eflingar. Einnig eru samningar um réttindaflutning milli allra fræðslusjóða innan Starfsgreinasambandsins  og V.R.
  5. Sá sem hverfur frá vinnu vegna veikinda, heimilisástæðna eða af öðrum gildum ástæðum heldur rétti sínum til styrks í allt að 24 mánuði, enda hyggist hann koma aftur til starfa eftir starfshlé. Starfsmaður sem lætur af störfum vegna aldurs heldur áunnum réttindum sínum í 24 mánuði eftir starfslok.
  6. Félagsmenn í launalausu leyfi eða í foreldraorlofi geta nýtt sér áunnin rétt skv. 1. og 2. gr. Velji þeir að greiða í sjóðinn ávinna þeir sér réttindi líkt og þeir væru við störf. 
  7. Félagsmenn í fæðingarorlofi geta nýtt sér áunninn rétt skv. 1. og 2. gr. velji þeir að greiða í sjóðinn ávinna þeir sér réttindi líkt og þeir væru við störf. 
  8. Félagsmenn sem verða atvinnulausir geta nýtt sér áunnin rétt skv. 1. og 2. gr. velji þeir að greiða í sjóðinn ávinna þeir sér réttindi líkt og þeir væru við störf. 
  9. Félagsmenn sem ekki hafa íslensku sem móðurmál geta sótt um styrk vegna íslenskukennslu eftir að hafa greitt félagsgjald  í 1 mánuð.


 



Vissir þú?

 



Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is