Fagnámskeið I og Fagnámskeið II eru fyrir starfsmenn sem starfa í heilbrigðis -og félagsþjónustu við umönnun og aðhlynningu. Þau eru auk annars, undanfari náms á félagsliðabrú.
Fagnámskeið I er 96 kennslustundir og Fagnámskeið II er 102 kennslustundir.
Fagnámskeið I umönnun, hópur 1: Byrjar 20. febrúar og lýkur 16. apríl 2012. Kennt verður á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 13.30 til 16.30.
Fagnámskeið I umönnun, hópur 2: Byrjar 21. febrúar og lýkur 17. apríl 2012. Kennt verður á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 13.30 til 16.30.
Fagnámskeið II, umönnun, hópur 1: Byrjar 6. febrúar og lýkur 3 .apríl 2012. Kennt verður á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 13.30 til 16.30.
Fagnámskeið II, umönnun, hópur 2: Byrjar 7. febrúar og lýkur 4. apríl 2012. Kennt verður á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 13.30 til 16.30.
Kennsla fer fram hjá Mímir að Ofanleiti 2.
Skráning hjá Eflingu í síma 510 7500