Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna
Félagsliðabrú

Félagsliðabrú er ætluð er fólki sem vinnur við umönnun t.d. á öldrunarheimilum, í heimaþjónustu eða við heimahlynningu er fjögurra anna eininganám sem kennt er samkvæmt námsskrá menntamálaráðuneytisins. Námið er 32 einingar og eru kenndar 8 einingar á hverri önn.

Námið er fyrir fólk sem hefur þriggja ára starfsreynslu við umönnun og hefur lokið samtals 230 stundum í starfstengdum námskeiðum, þ.m.t. svokölluðum Fagnámskeiðum sem eru undanfari félagsliðabrúarinnar og skilyrði þess að geta hafið nám í henni.

Félagsliðabrú 16, 1 önn: Byrjar 10. janúar og lýkur 7. maí  2012. Kennt er á mánudögum frá kl. 16.30 til 20.15.

Framhaldsnám félagsliða um fatlanir og geðrasaknir: Byrjar 7. febrúar og lýku 4. apríl  2012. Kennt er á þriðjudögum frá kl. 13.30 til 16.30 

 Kennsla fer fram í húsnæði Mímirs að Ofanleiti 2.

Skráning er á Eflingu í síma 510 7500



Vissir þú?


Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is