Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna

Hvernig getur þú náð betri tryggingarsamningum 

Hver þekkir ekki umræðuna á vinnustaðnum þar sem vinnufélaginn hefur hringt í tryggingafélagið sitt og státar af því að hafa lækkað heimilis- og bílatryggingarnar um tugi þúsunda. Það fer minna fyrir umræðunni um að á hverju ári hækka tryggingafélögin iðgjöld sín og taka þannig oft hljóðlega burtu ávinninginn sem viðskiptamaðurinn hafði af lækkun síðasta iðgjaldaárs. Félögin gæta þess að hafa iðgjöldin hæfilega ógagnsæ og hækka grunntaxta sína og lækka afslætti oft án þess að viðskiptamenn verði þess varir. Þetta segir Smári Ríkharðsson, sérfræðingur í tryggingum, en hann mun á næstunni aðstoða félagsmenn Eflingar-stéttarfélags við að ná hagkvæmari iðgjöldum með fræðslu og ráðgjöf á vegum félagsins.

Námskeiðið hefst 31. janúar og lýkur 28. febrúar 2012  kl.19.30 til 21.30  í húsnæði Eflingar stéttarfélags Sætúni 1 . Kennt er á þriðjudögum í tvö skipti

Námskeiðið hefst  9. febrúar og lýkur 8. mars  2012 kl. 19.30 - 21.30. Kennt verður á fimmtudögum í tvö skipti. Kennsla fer fram í húsnæði Eflingar að Sætúni 1 á 4 hæð

Skráning hjá Eflingu stéttarfélagi í síma 510 7500

Námskeiðið er Eflingarfélögum að kostnaðarlausu



Vissir þú?


Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is