Starfslokanámskeið Eflingar - stéttarfélags
Í mars 2012 verður boðið upp á námskeið fyrir þá félagsmenn sem eru að nálgast starfslok eða eru nýhættir launuðum störfum .
Námskeiðið er m.a. um tryggingamál , lífeyrisréttindi , áhrif starfsloka , heilsufar , öryggismál , húsnæðismál , félags -og tómstundastarf , erfðamál og félagið þitt eftir starfslok . Mikið af þessu efni auðveldar fólki starfslokin og gefur hagnýtar upplýsingar td varðandi tryggingamál .
Námskeiðið er þér að kostnaðarlausu og er þér velkomið að bjóða maka með þér . Boðið verður upp á léttan hádegisverð á laugardeginum og Kaffi og meðlæti .
Námskeiðsdagarnir eru 13. mars til 17. mars 2012 sem eru þriðjudagur, fimmtudagur og laugardagur. Kennt er á þriðjudeginum og fimmtudeginum kl : 19:00 - 22:00og á laugardeginum kl : 10:00 - 15.00 .
Kennsla fer fram í húsnæði Eflingar að Sætúni 1, 4 hæð
Námskeiðið er frítt fyrir Eflingarfélaga.
Innritun er hjá Eflingu - stéttarfélagi í sima 510-7500