Finna

Kanntu að taka á móti gestum ?

Skemmtileg kvöldstund með Bergþóri Pálssyni í boði Eflingar

Bergþór Pálsson stórsöngvari tekur á móti þátttakendum frá Eflingu á sérstöku námskeiði og fer yfir eitt og annað sem gestgjafar þurfa að hafa í huga þegar veislur eru annars vegar . Kynningar , samræður , gjafir , veislustjórn tækifærisræður og borðsiðir eru þættir sem hann ræðir vid gestina en þetta námskeið hefur verið mjög vinsælt undanfarin misseri .

Bergþór hefur skrifað bók um þetta efni og er reyndur námskeiðshaldari og fyrirlesari.

Námskeiðið verður fimmtudaginn 30 . september 2010 kl . 20,00 til 22,00  í húsnæði Eflingar stéttarfélags Sætúni 1 .

Skráning hjá Eflingu stéttarfélagi í síma 510 7500

Námskeiðið er frítt fyrir félagsmenn Eflingar.



Vissir þú?


Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is