Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna
Trúnaðarmannanámskeið

Trúnaðarmannanámskeið I, 1. og 2. þrep

Á þessu námskeiði er farið í starf og hlutverk trúnaðarmannsins samkvæmt lögum og samningum ásamt því sem farið er í starfsemi stéttarfélaga, hlutverk þeirra og viðfangsefni.

 

Trúnaðarmannanámskeið II, 3. og 4. þrep

Á þessu námskeiði er farið dýpra í starf verkalýðshreyfingarinnar ásamt því sem hagfræðihugtök eru skýrð og farið nánar í almennan vinnurétt og samskipti á vinnnustað.

 

Trúnaðarmannanámskeið III, 5. og 6. þrep

Þetta námskeið er ætlað þeim sem hafa lokið námskeiðum I og II og hafa verið í trúnaðarmannastarfinu í nokkurn tíma. Hér er farið í framkomu, það að koma fyrir sig orði, samingatækni, úrlausn erfiðra mála og fleira sem tengist starfi þeirra.

 

Trúnaðarmannanámskeið: 1. og 2. þrep.  Byrjar 16. janúar. og lýkur 20. janúar.  2012. Kennt alla virka daga frá kl. 9.00 til 15.30

Trúnaðarmannanámskeið: 3. og 4.  þrep. Byrjar 26. mars og lýkur 30. mars  2012. Kennt er alla virka daga frá kl. 9.00 til 15.30

Trúnaðarmannanámskeið:5. og 6. þrep. Byrjar 23. apríl og lýkur 27. apríl 2012. Kennt er alla virka daga frá kl. 9.30 til 15.30

Kennsla fer fram í húsnæði Eflingar Sætúni 1, 4 hæð

Skráning er hjá Eflingu í síma 510 7500



Vissir þú?


Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is