Á þessari síðu má finna aðalkjarasamninga Eflingar, launatöflur og stofnanasamninga. Smelltu á viðkomandi undirsíður til að fá yfirlit yfir
viðkomandi skjöl sem öll eru á pdf formi.
Hér að neðan eru eldri fréttir af kjaramálasviði félagsins s.s. um afgreiðslu kjarasamninga og fleira.
Þann 29. ágúst síðast liðinn var loks skrifað undir kjarasamning milli samtaka sjómanna og Landssambands smábátaeigenda. Viðræður milli samningsaðila höfðu staðið yfir í nokkuð langan tíma en Landssamband smábátaeigenda felldu kjarasamning sem síðast var skrifað undir í lok ársins 2007. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Sjómannasambands Íslands.
Sú ákvörðun var tekin við undirritun að atkvæði um samninginn verða talin sameiginlega fyrir aðildarfélög SSÍ sem standa að samningnum. Félagsmenn Eflingar sem eru aðilar að samningnum geta komið á skrifstofur félagsins í Reykjavík og eins í Hveragerði og greitt atkvæði fyrir 5. október næst komandi. Þann dag verða atkvæði talin í húsi ríkissáttasemjara fyrir hádegi.
LífeyrissjóðirnirÍ hruninu urðum við öll fyrir tjóni. Það er stundum látið eins og efnahagshrunið 2008 hafi ekki orðið og við þurfum ekki að taka afleiðingunum. Það er ennþá verið að tala um að lífeyrissjóðirnir okkar fjármagni hluta af vegakerfinu, Landsvirkjun og fleiri stór verkefni. Það eru endalausar kröfur á þessa sjóði okkar og þeir taka líka þátt í atvinnulífi okkar. En atvinnulífið verður fyrir sveiflum og þar skiptist á tap og hagnaður. Í mínum huga fannst mér þessi skýrsla úttektarmanna á lífeyrissjóðunum falla í áliti um leið og ég sá að þeir eru bara að reikna út tapið og afföll lána og verðbréfa hjá lífeyrissjóðunum en taka ekki með arðinn og tekjurnar á sama tíma. Það hefur aldrei gengið upp í mínu heimilsbókhaldi að taka bara gjaldahlutann og gleyma tekjunum, sagði Elínbjörg Magnúsdóttir á fundi trúnaðarráðs Eflingar á dögunum og uppskar mikið lófaklapp þegar rætt var um nýútkomna skýrslu um stöðu lífeyrissjóðanna eftir hrunið. Þetta er ekki boðleg aðferð, sagði hún.
Launahækkanir á almenna markaðnumLaunahækkanir á almenna markaðnum taka gildi frá og með deginum í dag 1. febrúar 2012. Launataxtar hækka um 11.000 kr. og almenn laun ásamt kjaratengdum liðum hækka um 3,5 %.
Nýjan launataxta má nálgast hér.
Kauptrygging og kaupliðir hjá sjómönnum hækka einnig um 3,5 % frá 1. febrúar 2012.
Kaupskrána má nálgast hér.
Launabreytingar hjá ríki, hjúkrunarheimilum og sveitarfélögum taka gildi 1. mars næst komandi.
Samkomulag hefur náðst á milli LÍÚ og samtaka sjómanna um að hækka kauptryggingu og aðra kaupliði hjá sjómönnum um sömu prósentuhækkun og samið var um á almenna vinnumarkaðnum.
Samninganefnd Flóafélaganna samþykkir umboð til framlengingar samninga
Karasamningur á milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins mun vera áfram í gildi en samninganefnd ASÍ ákvað í dag að segja ekki upp gildandi kjarasamningi. Launabreytingar munu því taka gildi þann 1. febrúar n.k. og launataxtar hækka um 11.000 kr. og almenn laun hækka um 3,5 %.
Yfirlýsingu samninganefndar ASÍ má sjá hér.
Launatöflu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins frá 1. febrúar 2012 má sjá hér.
Snúum okkur að atvinnuskapandi verkefnumNú þegar líður að hausti og staða atvinnumála er skoðuð blasir við að sumarið er að líða hjá án nokkurs viðsnúnings í atvinnumálum. Því miður er staðan sú hér á Eflingarsvæðinu að það eru jafnmargir án vinnu í júlí á þessu ári og var í febrúar árið 2010. Á sama tíma og fækkað hefur atvinnuleysishópnum á almenna markaðnum hefur atvinnulausum fjölgað hjá ríki og sveitarfélögum um rúmlega þá fækkun og gott betur. Í dag er fjöldi atvinnulausra 2520 í félaginu sem er nánast sama talan og var í febrúar 2010 en stóri munurinn liggur í því hvenær tíma árs þessar tölur eru fengnar. Skýringin er annars vegar í samdrætti vetrarins og hins vegar á háannatíma sumars. Þetta segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar í viðtali við Eflingarblaðið. Við verðum að snúa okkur að atvinnuskapandi verkefnum, segir hann.
Gerð heildarkjarasamnings frestað
SSSK hafa óskað eftir viðræðum um breyttan veikindarétt til samræmis við þau réttindi sem gilda á almennum markaði. Efling-stéttarfélag telur að slíkar viðræður þurfi að eiga sér stað á breiðari grundvalli þannig að sömu réttindi gildi fyrir alla starfsmenn hjá viðkomandi skóla. Samningaviðræður við aðra viðsemjendur SSSK svo sem leikskólakennara hafa ekki enn átt sér stað þar sem að deilur leikskólakennara standa nú yfir við sveitarfélögin. En niðurstöður kjarasamninga við sveitarfélögin hafa alla jafna myndað grunn fyrir kjarasamninga SSSK. Því er ljóst að sá réttindagrunnur sem liggur til grundvallar í kjarasamningi Eflingar við Reykjavíkurborg gildir áfram fyrir félagsmenn Eflingar sem starfa hjá skólum innan SSSK.

Föstudaginn 3. júní var skrifað undir nýjan kjarasamning Eflingar við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu.
Nýr kjarasamningur inniber í flestum meginatriðum það sama og samið var um á almenna markaðnum.
Í dag, 1. júní var skrifað undir nýjan kjarasamning Eflingar við ríkið.
Nýr kjarasamningur er sambærilegur í flestum meginatriðum og samið var um á almenna markaðnum.

Mikil eindrægni ríkti á fjölmennum fundi samninganefndar Flóafélaganna í gærkvöldi þegar farið var yfir drög að nýjum kjarasamningum sem nú liggja fyrir í stórum dráttum. Samninganefndin samþykkti eftir umræður einróma tvær tillögur sem lágu fyrir fundinum. Megintillagan var um heimild til viðræðunefndar Flóans að ljúka kjarasamningum á þeim forsendum sem kynntar voru á fundinum en hin tillagan var um að heimila sameiginlega atkvæðagreiðslu Eflingar, Hlífar og VSFK um kjarasamningana.

Sigurður Bessason, formaður samninganefndar Flóafélaganna afhenti fyrir stundu ríkissáttasemjara, Magnúsi Péturssyni bréf þar sem kjaradeilu stéttarfélaganna Eflingar-stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og VSFK var formlega vísað til embættis sáttasemjara.
Ályktun aðalfundar Eflingar-stéttarfélagsStéttarfélögin innan ASÍ hafa nú um margra mánaða skeið reynt að ná kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins. Upp úr samningaviðræðum slitnaði á föstudag í síðustu viku þegar SA gerði þá ófrávíkjanlegu kröfu, að þeirra sögn, að ekki yrði gengið frá samningum án þess að fá fram stefnumörkun stjórnvalda í fiskveiðistjórnunarmálum. Efling-stéttarfélag hefur ásamt ASÍ félögum gagnrýnt atvinnurekendur harðlega fyrir að taka launamál mikils meirihluta landsmanna í gíslingu með þessum ósvífna hætti.
Á mánudag sl. gengu síðan sömu samtök atvinnurekenda frá staðbundnum vinnustaðasamningi við eitt stærsta fyrirtæki landsins þar sem stefnan í sjávarútvegsmálum var engin fyrirstaða lengur.
Efling-stéttarfélag gerir þá kröfu til Samtaka atvinnulífsins að þar sem þau hafa með samningi við Elkem lagt til hliðar stefnu sína í sjávarútvegsmálum, þá gangi þau til samninga af fullri alvöru við félögin innan ASÍ strax eftir páskahátíðina.
Aðalfundur Eflingar stéttarfélags krefst þess að samningar á almennum markaði verði afturvirkir á sama hátt og Samtök atvinnulífsins hafa samþykkt í nýjum kjarasamningi SA og Elkem.
Úrslitastundin að nálgast
Aðilar Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins og fulltrúar ríkisstjórnarinnar mættu til fundar kl. 13:00 í dag í Ráðherrabústaðnum til að fara yfir stöðuna sem upp er komin í kjaraviðræðunum. Á fundinum lagði ríkisstjórnin fram tillögur sínar að lausn þessarar deilu.
Þetta getur farið í báðar áttir, sagði Sigurður Bessason formaður Eflingar stéttarfélags fyrir fundinn í dag.
Það var mitt mat þegar við hófum undirbúning kjarasamninganna í haust að kjarasamningarnir sem væru framundan yrðu með erfiðari samningum. Tíminn sem liðið hefur síðan hefur sannfært okkur enn frekar um hversu snúið þetta er, segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar og samninganefndar Flóafélaganna í samtali við Eflingarblaðið. Verkefnið núna er fyrst og fremst að endurheimta kaupmátt launa sem tapast hefur frá hruninu, tryggja sem flestum atvinnu og bæta réttarstöðu þeirra sem hafa orðið fyrir atvinnumissi, launalækkunum og ýmsum skerðingum eftir hrun efnahagslífsins.
Samninganefnd Flóans og fulltrúar SA hittast hjá ríkissáttasemjara.
Fundur samninganefndar Eflingar-stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis hefur samþykkt einróma að veita viðræðunefnd félaganna í yfirstandandi kjaradeilu við Samtök atvinnulífsins um aðalkjarasamninga og sérkjarasamninga heimild til að vísa deilunni til embættis ríkissáttasemjara þegar hún metur það tímabært.
Margir leita til EflingarÁ þessu ári hafa hátt í 700 mál verið skráð hjá félaginu þar sem að félagsmenn hafa óskað eftir liðsinni sem snýr að kjörum eða réttindum þeirra. Þá eru ótalin þau almennu símtöl og fyrirspurnir sem eru leyst jafnóðum. Allt frá haustinu 2008 hafa margir þurft að leita til félagsins þar sem að fyrirtæki sem þau starfa hjá hafa farið í gjaldþrot og félagsmenn meðal annars fengið aðstoð hjá félaginu til þess að sækja laun í Ábyrgðasjóð launa. Einnig hafa kjör hjá stórum hópi félagsmanna verið skert með ýmsu móti og oft misbrestur á hvort réttur starfsmanna sé virtur. Þetta segir Harpa Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjaramála hjá Eflingu en um tíu manna hópur starfsmanna vinnur nær eingöngu að því að liðsinna félagsmönnum.
Ræstingartilboð á LSH 60% af kostnaðarmatiEnn eina ferðina tekur ríkið þátt í að senda lægst launuðu starfsmenn sína rakleiðis í atvinnuleysi og gefur veiðileyfi á starfsfólk LSH. Þetta er gert með því að taka nú nýverið tilboði í ræstingar á sjúkrahúsinu sem sannarlega er undir kostnaðarmati. Á undanförnum misserum hefur LSH tekið ákvarðanir þar sem útboðsmarkaður er notaður til að knýja launakostnað niður og greinilegt að launum og réttindum starfsmanna má fórna fyrir það. Efling-stéttarfélag bendir á að þessi ákvörðun LSH gengur þvert á yfirlýsingar velferðar- og heilbrigðisráðherra Guðbjartar Hannessonar um að það þurfi að hækka launin í landinu.
Mikil samstaða meðal sjómannaÉg hef setið mörg sjómannasambandsþing um dagana en hef ekki séð svona algera samstöðu og eindrægni meðal sjómanna sem endurspeglaðist í öllu starfi á þinginu, segir Þórður Ólafsson sem var fulltrúi Eflingar-stéttarfélags á þingi Sjómannasambands Íslands í desember sl. Það voru bókstaflega engin stór ágreiningsmál en meginkrafa sjómanna er að kvótaúthlutanir fari á þá báta sem hafa veiðirétt með starfandi sjómönnum, segir Þórður. Síðan er það ótrúleg framkoma stjórnvalda í garð sjómanna að samráð við samtök sjómanna er nánast ekkert í hverju málinu á fætur öðru, segir hann.
Samninganefnd Flóans samþykkir áherslur um aukinn kaupmátt og eflingu vinnulífsinsÞað ríkti samstaða á þessum fjölmenna fundi okkar um megináherslur í komandi kjarasamningum, sagði Sigurður Bessason, en fyrsti fundur samninganefndar Flóafélaganna var haldinn 8. desember sl. Við teljum mikilvægast að móta hér nýja og framsækna lífskjara- og atvinnustefnu þar sem við setjum stefnuna á aukinn kaupmátt um leið og við viljum tryggja störf fólksins í landinu. Við höfum vísvitandi ekki lagt fram tillögur um launatölur þar sem ennþá vantar forsendur bæði frá stjórnvöldum og sveitarstjórnum sem unnt er að byggja á í okkar vinnu. Það var mjög góð samstaða um þessar áherslur sem við höfum þegar kynnt atvinnurekendum, segir Sigurður Bessason, sem var einróma kjörinn formaður samninganefndar á fundinum.
Samninganefndir Flóa og SA koma saman
Viðsnúningurinn hlýtur að liggja í fjölgun starfa sem gefi af sér auknar skatttekjur fyrir ríki og sveitarfélög með sama hætti og það bæti lífskjör launafólks með tilsvarandi fækkun á atvinnuleysisbótum, segir Sigurður Bessason, inntur eftir umræðuefni á fundi Flóafélaganna og SA þann 22. desember þegar fjölmennar samninganefndir aðila komu saman. Flóafélögin gera einnig kröfu til að styrking krónunnar skili sér til launafólks en til þess að svo megi verða þarf að stórauka verðlagseftirlit. Þá lýstu menn áhyggjum sínum varðandi sífellt fjölgandi tilfellum af svartri atvinnustarfsemi það kalli á ennfrekari útfærslu á vinnustaðaskilríkjum. Jafnframt lýstu félögin áhyggjum sínum af fjölgandi tilfellum þar sem fólk telur sig vera undir lágmarkstekjutryggingu. Ólík sýn aðila á samningstíma kom vel fram á fundinum.
Ný Gallup könnun Eflingar og Flóafélaganna
Félagsmenn vilja áfram áherslu á hækkun lægri launa
Meira en helmingur svarenda í nýrri Gallup könnun Eflingar og Flóafélaganna hefur áhyggjur af fjárhagsstöðu sinni en um fimmtungur þátttakenda hefur leitað aðstoðar vegna fjárhagslegra mála og þar af hefur um einn af hverjum tíu leitað eftir aðstoð til banka og fjármálastofana. Könnunin nú sýnir, líkt og fyrir ári, að enn dregur fólk úr útgjöldum vegna verri fjárhagsstöðu og hækkandi verðs, svo sem til ferðalaga og tómstunda. Það vekur áhyggjur að fjórði hver hefur dregið úr útgjöldum til heilbrigðisþjónustu og er það heldur hærra hlutfall en fyrir ári. Það kemur ekki á óvart að óánægja félagsmanna eykst með launin og krafa um hærri laun er áberandi efst á blaði þátttakenda. Það er fátt sem er jákvætt í þessari könnun nema helst það að fólk er sátt við þjónustu stéttarfélaganna. Einnig vekur alltaf jafn mikla athygli að mikill meirihluti félagsmanna leggur enn og aftur áherslu á hækkun lægstu launa jafnvel þó það þýði minni almenna hækkun launa.
Hér er um að ræða síðasta áfangann í launahækkunum í núgildandi kjarasamningi SA og Eflingar sem er aðgengilegur á heimsíðu félagsins ásamt launatöxtum undir kjarmál. Á síðasta ári hækkuðu launataxtar um 6.750 krónur þann 1. júlí 2009 og aftur þann 1. nóvember um sömu krónutölu kr. 6.750. 1. nóvember tók einnig 3,5% launaþróunartrygging gildi hjá þeim sem enga hækkun höfðu fengið frá 1. janúar 2009 og voru ekki á kauptaxta. Ef um hækkanir á launum var að ræða á þessu tímabili þá drógust þær frá 3,5%.
Samningurinn gildir til 30. nóvember á þessu ári en þá eru einnig aðrir kjarasamningar Eflingar lausir svo sem við ríki, sveitarfélög, hjúkrunarheimili og Reykjavíkurborg. Hliðstæð hækkun á launataxta gildir einnig frá 1. júní fyrir samninga Eflingar sem heyra undir opinbera samningssviðið en nánari upplýsingar má finna undir síðu kjaramála.
Kjarasamningar á almennum markaði hafa verið framlengdir til 1. nóvember 2010 þar sem Samtök atvinnulífsins nýttu sér ekki uppsagnarákvæði samninganna. Það mun því koma til umsaminna launabreytinga um næstu mánaðamót og síðan aftur 1. júní 2010. Ekki er komin niðurstaða um stöðugleikasáttmálann.