
Leigutaka ber að vitja lykla á auglýstum tíma! Ef þið tefjist er alveg nauðsynlegt að láta umsjónarmann vita. Að öðrum kosti er ekki hægt að tryggja lyklaafhendingu!
Viðkomandi símanúmer koma fram á leigusamningi.
Orlofshús Eflingar eru með svipuðum búnaði, ætluð fyrir 5 til 10 manns eftir stærð. Öll eldhúsáhöld eru til staðar, ísskápur, eldavél og örbylgjuofn. Sængur og koddar, barnastóll og barnarúm, sturta, svo og sjónvarp, útvarp og kola- eða gasgrill.
Orlofshúsin eru sameign okkar, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlega látið þá umsjónarmann eða skrifstofu félagsins vita. Ef vanhöld eru varðandi þrif getur komið til þess að húsið verði þrifið á kostnað síðasta leigutaka.
Leigutaki þarf að hafa með sér handsápu, handklæði, diskaþurrkur, borðtuskur og salernispappír. Einnig lín utan um sængur og kodda.
Öllum húsum Eflingar fylgja efni til þrifa, uppþvottalögur og burstar, gólfsápa og wc hreinsir. Gólfþveglar og moppur eru til staðar svo og kústar og ryksuga.
Gert er ráð fyrir að leigutakar nýti sjálfir ásamt fjölskyldum og/eða vinum hús sem þeir fá úthlutað. Framsal til annarra getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður frá úthlutun framvegis. Það á einnig við ef leigutakar brjóta almennar reglur og skyldur sem þeir takast á hendur við leigu orlofshúsa.
Hafi leigutaki einhverjar athugasemdir eða ef eitthvað vantar í húsin þá vinsamlegast látið umsjónarmenn á viðkomandi stað vita. Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Eflingar-stéttarfélags í síma 510-7500 (Ólöf eða Sveinn).
Reykskynjarar eru lífsnauðsynleg tæki í öllum húsum og hafa löngu sannað gildi sitt. Aldrei má taka rafhlöður úr þeim nema setja nýjar í eða láta umsjónaraðila eða skrifstofu félagsins vita. Munið að þessi smátæki hafa skipt sköpum og jafnvel bjargað mannslífum. Þess vegna verða þau að virka rétt. |
|
Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllu sem því fylgir. Skal hann þrífa vel eftir sig þ.m.t. ísskáp, eldavél og bakaraofn og örbylgjuofn, skápa, salerni og grill og skúra gólf. Einnig heita potta ef þeir eru. Stilla skal ofna á 1 - 2, loka gluggum og hurðum vandlega, skila lykli á sinn stað og taka rafmagnstæki úr sambandi. Komið ábendingum og athugasemdum til umsjónarmanna eða á skrifstofu Eflingar. |