Ánægjulegt er að skýra frá því að nú hefur Efling ákveðið að bjóða félagsmönnum sínum að kaupa Veiðikortið margrómaða á sérkjörum. Kortið er nú þegar til sölu á skrifstofu félagsins á aðeins kr. 3.000.- en fullt verð er kr. 6.000.-
Búast má við góðum undirtektum við þessu tilboði þar sem kortið er mjög hagkvæmur valkostur og veitir aðgang að rúmlega 30 veiðivötnum um allt land. Með Veiðikort í vasanum er ferðalagið fullkomið!
Um 5 ár eru síðan Veiðikortið kom fyrst fram á sjónarsviðið og má segja að frá fyrsta degi hafi það notið mikilla vinsælda. Enda fjölgar sífellt í þeim hópi sem kýs að njóta heilbrigðrar útiveru með fjölskyldu við vötn og veiðar.
Með Veiðikortinu fylgir veglegur bæklingur með ýtarlegum upplýsingum, lýsingar eru á veiðisvæðum, kort og myndir.
Veiðikortið gildir fyrir einn fullorðinn og börn yngri en 14 ára í fylgd korthafa. Kortið er stílað á einn einstakling auðkennt með kennitölu hans.
Það kostar félagsmann 12 punkta að fjárfesta í Veiðikortinu.
Allar frekari upplýsingar og lista um veiðisvæði er hægt að nálgast á www.veidikortid.is