Finna

Á sumrin eru húsin/íbúðirnar leigð félagsmönnum til vikudvalar í senn, en á öðrum tímum eftir samkomulagi.

Hvernig fer úthlutun orlofshúsa fram?

Punktakerfi og úthlutanir
Tölvukerfið úthlutar þannig að öllum umsóknum er raðað eftir punktaröð, þ.e. þeir umsækjendur sem hafa flesta punkta eru efst í röðinni og svo koll af kolli.

Lífaldur ræður ef punktar tveggja eru jafnir þ.e. sá sem er eldri fær fyrst úthlutað.  Kerfið les sig síðan í gegn um allar umsóknirnar og skoðar hvert val fyrir sig.   Þeir sem ekki fengu úthlutað í fyrstu umferð fara sjálfkrafa beint á biðlista ásamt þeim umsækjendum sem hafa fengið úthlutað s.l. 2 ár páska/sumar.

Eftir fyrri staðfestingarfrest verður úthlutað aftur skv. sömu reglu á þær umsóknir sem eru á biðlista.

Svona safnast punktar
Punktar safnast þannig að fyrir tekjur sem nema allt að 40.410 kr. á mánuði fæst 1 punktur, en 2 punktar á mánuði fyrir tekjur umfram þá upphæð. Hámarkssöfnun er 12 ár eða 288 punktar. Þegar 12 árum er náð fellur elsta árið aftan af og það nýja bætist við.

Félagsmenn á eftirlaunum eiga sama rétt á að sækja um og aðrir.

Fyrstur kemur fyrstur fær !
Ef engin umsókn er um tiltekna viku eftir fyrri og seinni úthlutun, verður úthlutað skv. sérstakri auglýsingu óháð punktakerfi, þ.e. fyrstur kemur fyrstur fær.   Sama punktafrádrag gildir þó bókað sé með skömmum fyrirvara.





Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is