Fréttir:
Styrkir hækka í sjúkrasjóðiFrá og með 1. janúar 2012 hækka eftirfarandi styrkir hjá Sjúkrasjóði Eflingar til að koma til móts við sjóðfélaga vegna hækkana hjá meðferðaraðilum: Hækkanirnar nú nema allt að 100%.
Frá sjúkrasjóði og fræðslusjóðum Eflingar15. desember er síðasti skiladagur umsókna vegna desembermánaðar 2011.
Stefnt er að því að greiða út fyrir jólin eða þann 22. desember n.k.
Mjög gefandi starf í sjúkrasjóðumEftir hrunið haustið 2008 fjölgaði umsóknum í sjóðina gríðarlega og sú þróun heldur áfram. Fyrir hrunið voru umsóknir í kringum 400 á mánuði en eru nú um eða yfir 600 sem er þriðjungs aukning. Hækkun útgjalda og fjölgun umsókna milli ársins 2009 og 2010 er til að mynda yfir 10%, á sama tíma og tekjur sjóðanna hafa verið að dragast mikið saman. Þrátt fyrir það er fjárhagsstaða sjóðanna ágæt eftir hrunið og búa þeir að góðri fjármálastjórnun og varfærni í útgjöldum undanfarin ár, en þó mun ganga verulega á höfuðstól Jóhönnu- og Vilborgarsjóðs, segir Guðrún Óladóttir, sviðsstjóri sjúkrasjóða Eflingar þegar við spurðum hana um helstu verkefni og tíðindi af sjúkrasjóðunum.
Sjúkrasjóður hækkar styrki Starfsmenn Sjúkrasjóðs hafa haldið skrá um kvartanir til sjúkrasjóðs um nokkurt skeið og hefur komið í ljós að kvartanir vegna upphæðar gleraugnastyrks og heyrnartækja skera sig úr, þar sem um 90% kvartanna voru vegna þeirra, enda hefur kostnaður sjóðfélaga vegna kaupa á þessum tækjum hækkað hvað mest eftir að kreppan skall á. Þess vegna ákvað stjórn sjóðsins á dögunum að hækka endurgreiðslur vegna gleraugna og heyrnarstyrks auk nokkurra annarra styrktegunda þar sem kostnaður sjóðfélaga hefur einnig hækkað umtalsvert undanfarið.
Athugið! Skila þarf gögnum fyrr í desember 2009 . Greitt verður út fyrir jólin.
Til að ná þeirri útborgun þarf að skila umsóknum og öðrum gögnum í síðasta lagi 15.12.09. Fyrsta útborgun 2010 verður um mánaðamótin janúar/febrúar 2010.
Vegna þessara aðstæðna hafa ASÍ fyrir hönd aðildarfélaga sinna og neðangreindar heilsuræktarstöðvar ákveðið að framlengja gildistíma samningsins til og með 31. desember 2010.
Þau stéttarfélög innan ASÍ sem gerast aðila að samningnum styrkja félagsmenn sína sem hafa misst vinnuna og eru atvinnulausir um kr. 2.000 að lágmarki á mánuði til að stunda heilsurækt. Heilsuræktarstöðvar innan SHS veita þessum viðskiptavinum að lágmarki 50% afslátt á greiðslu af mánaðarkortum stöðvanna.
Atvinnulausum félagsmönnum aðildarfélaga ASÍ sem gerst hafa aðilar að samningnum stendur nú til boða mánaðarkort á sérkjörum með stuðningi félagsins. Algengasta verð er frá 1.500 til 2.000 kr. á mánuði.
Eftirtaldar heilsuræktarstöðvar eru þátttakendur í verkefninu: Árbæjarþrek, Baðhúsið, Bjarg, Dansrækt J.S.B., Hress, Hreyfing, Sporthúsið, Toppsport, og World Class.