Finna

Félagið leggur mikla áherslu á að bjóða þeim fræðslu á sviði kjara- og félagsmála og koma til þeirra nýjustu upplýsingum hverju sinni. Samkvæmt samningum á að vera trúnaðarmaður á öllum vinnustöðum sem hafa 5 eða fleiri félagsmenn.

Meginhlutverk trúnaðarmanna er að gæta þess að lög og samningar séu haldnir á vinnustaðnum og vera tengiliður starfsmanna við stéttarfélagið. En við höfum einnig þróað nám í starfs- og námsráðgjöf fyrir trúnaðarmenn þar sem við undirbúum þá til að geta verið samstarfsmönnum innan handar vilji þeir bæta við sig námi.

Ef það er ekki trúnaðarmaður á þínum vinnustað hafðu þá samband við skrifstofu Eflingar og við setjum upp vinnustaðafund til að kjósa trúnaðarmann.

 

Vissir þú?


Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is