Vinningshafar í Gallup könnun fengu 35.000 kr. – Þú lýgur ég vinn aldrei

18. 11, 2014

Sagði Guðni Karl Harðarson þegar honum var tjáð í símtali að hann væri einn vinningshafa í Gallup könnun Flóafélaganna og hann hefði unnið 35.000 kr. Hann var mjög glaður með vinninginn og sagði hann koma að góðum notum. Ásamt honum fengu sex aðrir Flóafélagar vinning en niðurstöður könnunarinnar verða meðal annars notaðar til að móta starfsemi félagsins og kröfugerð í komandi kjarasamningum. Að auki má benda á að nú þegar hafa tíu heppnir þátttakendur verið dregnir út vegna þeirrar nýbreytni í ár að þátttakendur lentu í happdrættispotti um leið og þeir luku við könnunina og fengu þeir 8000 kr. gjafaúttekt.Efling stéttarfélag þakkar öllum þeim sem tóku þátt í könnuninni en nöfn þeirra fimm Eflingarfélaga sem voru dregin út í lokin eru :Díana S SveinbjörnsdóttirGuðni Karl HarðarsonFidajete BujupiSofia Birgitta KrantzPétur Vilhjálmsson