Páskaúthlutun orlofshúsa Eflingar 2006

11. 01, 2006

Páskaúthlutun orlofshúsa Eflingar 2006

Tekið við umsóknum til 10. mars

Tekið verður við umsóknum um orlofshús til 10. mars n.k. Umsóknir og upplýsingar um húsin liggja frammi á skrifstofu Eflingar – stéttarfélags, Sætúni 1, 105 Reykjavík og á heimasíðu félagsins www.efling.is.  Umsóknareyðublað fylgir með blaðinu. Einnig er hægt er að fá eyðublað sent á faxi og með pósti.

Úthlutun mun liggja fyrir 15. mars og greiðslufrestur hjá þeim sem fá úthlutað er til 23. mars n.k.   Frá og með 30. mars er hægt að athuga hvort eitthvað hafi fallið út.

Húsin verða leigð í viku frá 12. apríl – 19. apríl n.k.   Úthlutað er eftir punktakerfi sem byggist á iðgjaldasögu félagsmanna síðustu 12 ár. Hægt er að senda okkur tölvupóst á netfangið efling@efling.is og þarf þá að koma fram nafn, kennitala og hvaða hús er sótt um sem fyrsta valkost, annan valkost og allt að 6 valmöguleika.