Hvað segja starfsmenn borgarinnar – um launin?

Hvað segja starfsmenn borgarinnar – um launin???

Um síðustu mánaðarmót fengu félagsmenn Eflingar-stéttarfélags sem starfa hjá Reykjavíkurborg greidd laun samkvæmt nýgerðum kjarasamningi Eflingar við borgina.  Af því tilefni heimsótti blaðið nokkra vinnustaði hjá borginni og spurði starfsmenn hvort að launahækkunin og aðrar greiðslur sem samið var um hefðu ekki skilað sér í launaumslögin.


Ragnheiður Clausen er leiðbeinandi á leikskólanum Rofabæ

Mjög ánægð

 

 
Ég er mjög ánægð með kjarasamningin fyrir leikskólastarfsmenn og mér leist ágætlega á upphæðina sem var í launaumslaginu mínu. Svo fæ ég vonandi meiri launahækkun þegar ég lýk námi í Leikskólabrúnni.
 


Dagmar Jóhannesdóttir, heimaþjónustu Norðurbrún

Kemur í ljós um næstu mánaðamót


Ég kannast við að hafa fengið launahækkun og eingreiðslu og svo var samningurinn afturvirkur og það hækkaði upphæðina líka talsvert. En um næstu mánaðarmót verða engar aukagreiðslur og þá kemur betur í ljós hvað launin mín hafa hækkað mikið.
 


Bryndís Gísladóttir Skógarbæ

Umönnunarstörf metin lægra

 
Launabreytingarnar skiluðu sér í launaumslagið mitt. En það er langt frá því að ég sé sátt, vegna þess að laun starfsfólks í umönnun eru mun lægri en hjá öðrum starfshópum.
 

Ánægð með árangurinn

– segir Hrönn Bjarnþórsdóttir

 
Hrönn Bjarnþórsdóttir er skólaliði í Réttarholtsskóla og var í samninganefndinni.

Ég varð mjög ánægð þegar ég sá árangurinn af starfi samninganefndar Eflingar á launaseðlinum mínum. Launahækkunin sem ég fékk skiptir verulegu máli fyrir mig. Ég á son sem býr í Danmörku og núna sé ég m.a. fram á að geta heimsótt fjölskyldu hans mun oftar.