Aðalfundur 2010

20. 04, 2010

Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags

Aðalfundur Eflingar –stéttarfélags 2010 verður haldinn fimmtudaginn 29. apríl í sal Ferðafélags Íslands að Mörkinni 6. Fundurinn hefst kl. 20.00

Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Breyting á reglugerð Sjúkrasjóðs
3. Tillaga um sameiningarviðræður við Vlf. Hlíf í Hafnarfirði og VSFK í Keflavík
4. Önnur mál

Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni að Sætúni 1 frá og með föstudeginum 23.apríl nk..

Félagar mætið vel og stundvíslega.

Stjórn Eflingar-stéttarfélags