Fræðslu og kynningarfundur Gildis

22. 11, 2011

sjodfelagfundur_hja_gildi                                                                       Aðildarfélagar Gildis-lífeyrissjóðs.

Fræðslu- og kynningarfundur Gildis 

Gildi-lífeyrissjóður boðar til fræðslu og kynningarfundar fyrir sjóðfélaga miðvikudaginn 23. nóvember nk. kl. 17.00  á Hilton Reykjavík Nordica. 

Á fundinum mun Benedikt Jóhannesson tryggingastærðfræðingur fjalla um verðtryggingu og áhrif afnáms hennar á lífeyrissjóði, Sigurður B. Stefánsson sjóðstjóri í eignastýringu Landsbankans mun fjalla um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða og Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri Gildis mun fara yfir stöðu sjóðsins.