Vetrarleigan komin á fullt

26. 08, 2013

brekkuskmramma

Vetrarleigan komin á fullt!

Tímabil vetrarleigu á orlofshúsum / íbúðum er frá 30. ágúst 2013 til 25. maí 2014. Páskar eru undanskildir þar sem úthlutað er sérstaklega um páska og verður það auglýst síðar. Bókað er sex mánuði fram í tímann. Greiðsla vegna leigu á orlofshúsi þarf að berast innan þriggja virka daga frá bókun.

Helgarleiga miðast við fimmtudag til sunnudags eða föstudag til mánudags. 3 nætur.

Punktafrádrag er ekkert fyrir félagsmenn í vetrarleigu.

Hvernig leigi ég orlofshús!
Þú hringir í síma 510 7500 eða kemur við hjá okkur á skrifstofu félagsins að Sætúni 1.

Illugastaðir og Einarsstaðir.
Hús á þessum stöðum eru leigð beint af rekstrarfélögunum á staðnum.
Sími á Einarsstöðum er 861 8310 og sími á Illugastöðum er 462 6199.
Önnur orlofshús og íbúðir eru bókaðar í síma 510 7500 á skrifstofu Eflingar.