Flóafélögin vísa kjaradeilu til sáttasemjara

10. 12, 2013

 heimasida_floinn_hja_satta

Flóafélögin vísa kjaradeilu til sáttasemjara

Áhersla Flóans á hækkun lægri launa

Að loknum stuttum fundi Flóans við Samtök atvinnulífsins í gær, ákváðu Flóafélögin, Efling, Hlíf og VSFK að vísa kjarasamningsviðræðum til sáttasemjara. Aðalástæðan var sú að of mikið bar á milli aðila í aðferðafræði um launalið, þar sem Flóinn telur það ófrávíkjanlega kröfu að leggja sérstaka áherslu á lægri laun með krónutöluhækkun auk almennrar launahækkunar.

Samtök atvinnulífsins lögðu áherslu á að sú aðferð sem stéttarfélögin telja að hafi tryggt sérstaklega stöðu lægri tekjuhópa innan stéttarfélaganna á síðari árum, muni leiða til verðbólgu. Þá segja Samtök atvinnulífsins  svigrúm til launabreytinga vera lítið.  Flóabandalagsfélögin meta það svo að það ríki grundvallarágreiningur við SA um launalið kjarasamninganna.

Viðræðum hefur  þess vegna verið vísað til sáttasemjara.