Nýr aðfarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga

umonnun

Nýr aðfarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga

Fjölmennustu hópar hækka um 20 þúsund krónur

Í nýjum aðfarasamningi sem undirritaður var í vikunni milli Flóafélaganna og Sambands íslenskra sveitarfélaga  eru launahækkanir á tímabilinu frá tæplega 10.000 kr. upp í 28.000 kr.  Mismunandi er eftir starfahópum og eins starfsaldri hver hækkunin er.  Fjölmennasti hópurinn er að hækka um liðlega 20.000 kr. á tímabilinu eða ríflega 8%. Í þessum hópi eru m.a. heimaþjónusta, skólaliðar og verkamenn. Launahækkunin er frá 1. maí en síðan hækka launin aftur frá 1. janúar 2015. Lágmarkslaunatöluhækkun er kr. 9.750 en auk þess verður lagfæring á tengitöflu sem tekur gildi frá 1. maí sl.  Desemberuppbót hækkar um 15,9% og fer í 93.500 kr.  

Efling, Hlíf og VSFK skrifuðu undir nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga 1. júlí síðast liðinn sem gildir frá 1. maí 2014 til 30. apríl 2015.  Hér er um skammtímasamning að ræða þar sem lögð var megináhersla á lagfæringu launa en líkt og um aðra kjarasamninga sem gengið hefur verið frá undanfarið er þetta jafnframt aðfarasamningur sem felur það í sér að strax í haust hefst vinna við undirbúning á langtímasamningi þar sem farið verður yfir einstök mál hjá ólíkum starfahópum.

Launahækkanir koma í tveimur skrefum, fyrstu hækkanir taka gildi frá 1. maí síðast liðnum og þá kemur önnur hækkun 1. janúar 2015.
Launahækkunin sem kemur frá 1. maí felst í lágmarkskrónutöluhækkun upp á 9.750 auk þess sem að lagfæring á tengitöflu tekur gildi.
Þá hækkar launatafla aftur 1. janúar 2015 þar sem að bil á milli launaflokka verður aukið.

Samtals eru launahækkanir á tímabilinu frá tæplega 10.000 kr. upp í 28.000 kr.  Mismunandi er eftir starfahópum og eins starfsaldri hver hækkunin er.  Fjölmennasti hópurinn er að hækka um liðlega 20.000 kr. á tímabilinu eða ríflega 8%.  Lágmarkslaun verða samkvæmt samningnum tæplega 230.000 krónur.
Desemberuppbót hækkar um 15,9% og fer í 93.500 kr. 

Á næstu dögum fá félagsmenn Eflingar sem starfa hjá öðrum sveitarfélögum en Reykjavíkurborg sent kynningarefni um samninginn og hann borinn undir atkvæði.  Niðurstöður munu liggja fyrir þann 28. júlí næstkomandi.

Þar sem um flókinn samning og flóknar breytingar er að ræða er mjög mikilvægt að viðkomandi félagsmenn kynni sér vel þau gögn sem send verða til þeirra á næstu dögum.