Skrifað undir kjarasamning við hjúkrunarheimili

20. 10, 2015

hjúkrunarheimili undirrituna      Skrifað var undir nýjan kjarasamning við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu sem tekur til um tvö þúsund félagsmanna í Eflingu, Hlíf og VSFK. Kjarasamningurinn er sambærilegur við nýjan kjarasamning félaganna við ríkið og gildir hann afturvirkt frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019.

• Kjarasamningurinn felur í sér verulegar launahækkanir við upphaf samnings þar sem að launataxtar hækka um 25.000 kr. eða að meðaltali um 9,78%.

• Launataxtar hækka að lágmarki um 15.000 kr. 1. júní 2016 auk leiðréttingar á launatöflu sem jafngildir 5,9% hækkun að meðaltali. 

• Þann 1. júní 2017 hækka launataxtar um 4,5%

• Þann 1. júní 2018 hækka laun um 3%.

• Sérstök eingreiðsla kemur 1. febrúar 2019 að upphæð kr. 45.000, miðað við þá sem eru í fullu starfi 1. janúar 2019 og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi.

• Lagt verður árlega allt að 1% viðbótarfjármagn til stofnanasamninga árin 2016 – 2018.

• Framlag í fræðslusjóð eykst um 0,15% og verður 0,82% sem er mjög jákvætt skref til þess að efla félagsmenn enn frekar í starfi.

• Tekjutryggingin hækkar um 86.000 kr. á samningstímanum og verður komin í 300.000 kr. l. maí 2018.

• Orlofsuppbót hækkar um 21,5% á samningstímanum og fer í 42.000 kr. við upphaf samnings en verður komin í 48.000 kr. í lok samnings.

• Desemberuppbót hækkar um tæplega 21% og fer í 78.000 kr. á árinu 2015 en 89.000 kr. í lok samningstíma.

Ítarlegur kynningarbæklingur verður sendur heim til félagsmanna auk atkvæðaseðils og eru félagsmenn hvattir til að nýta sér atkvæðisrétt sinn. Auk þess verða kynningafundir um kjarasamninginn auglýstir nánar á heimasíðu stéttarfélaganna.Niðurstöður atkvæðagreiðslu liggja fyrir þann 13. nóvember næstkomandi.Samninginn í heild sinni má nálgast hér.