Ráðstefna ASÍ um jafnréttismál 12. nóvember

Vinnumarkaðurinn og jafnréttisbaráttan – eru verðmætin í jafnréttinu falin?Jafnréttisnefnd ASÍ býður til ráðstefnu 12. nóvember 2015 kl. 10:00 – 16:00 á Icelandair Hótel Reykjavík NaturaÍ ár eru 40 ár frá því að íslenskar konur lögðu niður störf þann 24. október til að sýna fram á mikilvægi   vinnuframlags þeirra og krefjast bættra kjara. 60 ár eru frá því að fyrsta jafnlaunaráðstefna ASÍ var haldin, þar sem fjallað var um kjör kvenna. Í ár fagna íslenskar konur 100 ára afmæli kosningaréttar og á næsta ári fagnar Alþýðusamband Íslands 100 ára afmæli sínu.Skráning fer fram á heimasíðu ASÍ fyrir 9. nóvember, sjá hér. DAGSKRÁ10:00     Setning Signý Jóhannesdóttir, formaður jafnréttisnefndar ASÍÁvarp Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍFæðingarorlof – árangur í glatkistuna? Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði við HÍÁrekstrar vinnu og heimilis í hruni og endurreisn Þóra Kristín Þórsdóttir, doktorsnemi við HÍRödd úr raunveruleikanum Valgeir Sveinn Eyþórsson, Afl StarfsgreinafélagKynbundið náms- og starfsval Sif Einarsdóttir, prófessor við HÍ12:00     Hádegisverður12:45     Sjálfmynd stelpna Kristín Tómasdóttir, rithöfundurLaunajafnrétti og jafnlaunastaðall Maríanna Traustadóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍEr jafnrétti í augsýn? Katrín Ólafsdóttir, lektor við HRStaða kynjanna í Fjallabyggð fyrir og eftir Héðinsfjarðargöng Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, félagsfræðingur við HA14:30     Kaffihlé14:45     Er verkalýðshreyfingin í raun fyrir ungt fólk á vinnumarkaði? Hrönn Jónsdóttir, Grafía, stéttarfélag í prent- og miðlunargreinumÁ fólk að segja sig til sveitar? Erna Indriðadóttir, ritstjóri Lifðu núnaSnjókorn Valgerður Bjarnadóttir, hugsjónakonaAllir velkomnir. Ekkert þátttökugjald.