Breyttu lífi þínu með markþjálfun

13. 09, 2016

markthalfun3Vinsældir markþjálfunar hafa verið miklar og því býður Efling sínum félagsmönnum upp á námskeið fjórða árið í röð. Leiðbeinandi er Arnór Már Másson, sálfræðimenntaður og þrautreyndur ACC markþjálfi hjá AM Markþjálfun slf. Markþjálfun aðstoðar fólk að komast að því hvaða verðmæti leynast í raun og veru innra með þeim og miðar að því að losa um innbyggða möguleika einstaklinga og hóps.

Á námskeiðinu fá félagsmenn tækifæri til að læra um styrkleika sína, langanir og markmið og skoða eigin lausnir og leiðir til að ná því. Leiðbeinandi opnar fyririnnihaldsríkar samræður og nálgast þátttakendur með léttleika og á persónulegan hátt. Þannig fær einstaklingurinn í hópnum að njóta sín og lærir að láta ljós sitt skína í öruggu og vinsamlegu umhverfi.Námskeiðið verður í 4 skipti kl. 18.30-21.30  þriðjudaga og fimmtudaga 27., 29. sept., 4. og 6. október 2016 (2 vikur). Kennt verður í húsnæði Eflingar Guðrúnartúni/Sætúni 1, 4. hæð og geta félagsmenn Eflingar skráð sig í síma 510 7500 eða á netfangið efling@efling.isNámskeiðið er félagsmönnum að kostnaðarlausu – hámarksfjöldi 20 manns.