Atkvæðagreiðslu um kjarasamning sjómanna er lokið – samningurinn var felldur

14. 12, 2016

Atkvæðagreiðslunni um kjarasamninginn milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi lauk kl. 12:00 á hádegi í dag. Aðild að samningnum áttu öll aðildarfélög SSÍ að Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur og Verkalýðsfélagi Vestfirðinga undanskildum.Á kjörskrá voru 1.098 sjómenn og af þeim greiddu 743 atkvæði eða 67,7%.Niðurstaðan er þessi:Já sögðu 177 eða 23,82% þeirra sem greiddu atkvæði.Nei sögðu 562 eða 75,64% þeirra sem greiddu atkvæði.Auðir seðlar voru 4 eða 0,54% greiddra atkvæða.Samkvæmt framansögðu var því samningurinn felldur með meiri hluta greiddra atkvæða. Verkfall hjá félagsmönnum aðildarfélaga SSÍ hefst því kl. 20:00 í kvöld