87% telja launafólk þurfa sterk verkalýðsfélög

27. 02, 2017

Í nýrri alþjóðlegri skoðanakönnun um viðhorf til vinnu og vinnuaðstæðna, sem framkvæmd var hér á landi um mitt síðasta ár og kynnt í Háskóla Íslands í föstudaginn 24. febrúar, kemur m.a. fram að 87% svarenda telja launafólk þurfa sterk verkalýðsfélög til að verja hagsmuni þess en aðeins 4% eru ósammála fullyrðingunni.Tekið var 3000 manna tilviljunarúrtak einstaklinga 18 ára og eldri úr Þjóðskrá. Gagnaöflun hófst 26. maí og lauk 31. ágúst 2016. Alls svöruðu 1127 könnuninni.Þegar spurt var álits á fullyrðingunni; Sterk verkalýðsfélög eru slæm fyrir íslenskt efnahagslíf, þá sögðust 79% vera ósammála en 5% voru sammála henni.Þegar spurt var hvað einkenni gott starf svöruðu 97% atvinnuöryggi og að starfið væri áhugavert. 83% nefndu möguleika á framgangi í starfi, 79% háar tekjur og 78% sögðu sjálfstæði í starfi mikilvægt þegar kæmi að góðum störfum.Könnunina má sjá í heild sinni hér.