Nauðsynlegt að taka þátt í starfi Eflingar -segir Hjördís Kristjánsdóttir

19. 06, 2017

Ég er spennt fyrir því að taka sæti í stjórn Eflingar og fá að sjá með skýrari hætti innri uppbyggingu Eflingar og að hverju er verið að vinna og hvar áherslurnar liggja. Það verður gaman að verða þátttakandi í því, segir Hjördís Kristjánsdóttir sem er ný í stjórn Eflingar.Alltaf haft áhuga á verkalýðsmálum Hjördís hefur unnið hjá Össuri í ellefu ár og verið trúnaðarmaður þar af í tvö ár. Ég ætlaði ekkert að verða trúnaðarmaður en það var bent á mig og ég gat ekki skorast undan því. Ég hef alla tíð haft áhuga á verkalýðsmálum, segir hún en Hjördís var lengi trúnaðarmaður í leikskóla þegar hún var í Sókn hér áður fyrr.Trúnaðarmannastarfið hefur gengið vel og ég fæ helst almennar fyrirspurnir frá fólki og flestar í tengslum við sjóði félagsins og endurgreiðslur úr þeim og einnig hvar fólk eigi að leita að upplýsingum. Það hefur verið gott að vera trúnaðarmaður, ég hef sótt fjölda af skemmtilegum og fræðandi námskeiðum og var bara um daginn á einu mjög uppbyggjandi námskeiði, segir hún. Tilgangur þess var að efla okkur trúnaðarmennina í starfi og það var mjög skemmtilegt og vel heppnað námskeið.Nauðsynlegt fyrir félagsmenn að taka þátt Ég hugsaði með mér að ég yrði að prófa, segir Hjördís aðspurð um hvort hún hafi þurft að hugsa sig um að taka sæti í stjórn Eflingar eða ekki. Ég hef áhugann og veit að ég get staðið undir þessu starfi. Ég verð að láta á það reyna því maður veit aldrei fyrr en á hólminn er komið, segir hún. Það er nauðsynlegt fyrir okkur félagsmenn að taka þátt í starfi Eflingar. Fólk getur kvartað mikið og haft ákveðnar skoðanir á málefnum en tekur svo ekki þátt í neinu en vill samt breyta öllu. Til þess að hafa áhrif verður fólk að vera virkt í starfi innan félagsins, það gerist ekkert nema með því að taka þátt.Öruggt húsnæði fyrir alla Eitt af stóru málunum sem brennur á mörgum í dag eru húsnæðismálin og segir Hjördís að Ný í stjórn – segir Hjördís Kristjánsdóttir tryggja verði öruggt húsnæði fyrir alla. Ég er mjög hrifin af verkefni verkalýðshreyfingarinnar sem snýr að húsnæðismálum. Bjarg íbúðafélag sem stofnað var af ASÍ og BSRB án hagnaðarmarkmiða mun á næstu árum byggja íbúðir fyrir tekjulágt fólk til langtímaleigu.Það er sorglegt hvernig staðan er orðin í húsnæðismálum. Það er margt ungt fólk sem á mjög erfitt með að komast að heiman. Undanfarin ár hefur ástandið verið erfitt og húsaleiga rokið upp úr öllu valdi og á sama tíma er íbúðaverð ekki í tengingu við neitt sem ég hef séð áður. Það minnkar lífsgæði fólks ef það býr ekki við öruggan húsakost.Íslenskt samningsmódel af norrænni fyrirmynd eða Salek er annað stórt mál. Það samkomulag er fínt út af fyrir sig en ég get ekki séð að við séum tilbúin strax fyrir það. Það byggir á norrænu velferðarkerfi og ég tel að það sé margt sem við þurfum að laga hjá okkur og ná áður en við getum innleitt Salek.Vil láta gott af sér leiða Eins og af öllu nýju sem maður tekur sér fyrir hendi vænti ég þess að læra af þessu, segir Hjördís þegar hún er spurð hvers hún vænti af komandi stjórnarsetu. Ég held ég muni eflast inn á við og það mun gefa mér meira sjálfstraust. Vonandi hitti ég gott fólk og ég trúi því að við munum máta okkar hugmyndir saman og móta þær áfram og láta gott af okkur leiða, segir hún að lokum.