Áhrif #metoo á vinnumarkaðinn – ASÍ-UNG efna til fundar

ASÍ-UNG efna til pallborðsumræðu um áhrif #metoo byltingarinnar innan vinnumarkaðarins og aðgerðir stéttarfélaga í þeim málum, þriðjudaginn 6. febrúar kl.20.00 í Stúdentakjallaranum.#metoo byltingin hefur verið mikið í umræðunni undanfarið bæði hér á landi og um allan heim.ASÍ-UNG langar að fá ólík sjónarmið að borðinu og bjóða upp á vettvang fyrir spurningar frá gestum úr ýmsum áttum.Í pallborði verða:María Rut Kristinsdóttir, fv. formaður samráðshóps ráðherra um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins og fv. talskona druslugöngunnarDrífa Snædal, framkvæmdastjóri StarfsgreinasambandsinsRagnar Þór Ingólfsson, formaður VRMaríanna Traustadóttir, sérfræðingur í jafnréttismálum frá ASÍEiríkur Þór Theódórsson, varaformaður ASÍ-UNG.Fundarstjóri er Halldór Oddsson, lögfræðingur hjá ASÍ.