Efling vill segja upp kjarasamningum en samningar halda skv. niðurstöðu formannafundar

28. 02, 2018

[et_pb_section fb_built=“1″ admin_label=“section“][et_pb_row admin_label=“row“][et_pb_column type=“4_4″ parallax=“off“ parallax_method=“on“][et_pb_text admin_label=“Text“]

Efling vill segja upp kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins eins og fram kom í máli Sigurðar Bessasonar, formanns Eflingar á formannafundi aðildarfélaga ASÍ í dag. Niðurstaða fundarins var hins vegar sú að halda gildandi kjarasamningum við SA til áramóta. Á fundinum var leynileg rafræn atkvæðagreiðsla um uppsögn kjarasamninga og þurfti bæði meirihluta þeirra fundarmanna, þ.e. formenn aðildarfélaga ASÍ sem fóru með atkvæði á fundinum og meirihluta þess atkvæðavægis sem að baki þeim standa.

Form­legt vald til að segja upp kjara­samn­ing­un­um er í hönd­um átta manna samn­inga­nefnd­ar ASÍ en nefnd­in ákvað það að fundi sín­um í morg­un að gera ákvörðun fund­ar formann­anna að sinni.

Alls greiddu 49 atkvæði á fundinum en þeir voru með 79.062 félagsmenn (heilsársstörf) á bak við sig.

Niðurstaða formanna:

Já, vil segja upp 21 (42,9%)

Nei, vil ekki segja upp 28 (57,1%)

Vægiskosning:

52.890 (66,9%)

Nei 26.172 (33,1%)

Í atkvæðagreiðslunni þurfti bæði meirihluta fundarmanna sem fóru með atkvæði á fundinum og meirihluta þess atkvæðavægis sem að baki þeim standa. Þar sem ekki náðist meirihluti fundarmanna var tillaga um uppsögn samninga felld.

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði munu því gilda til ársloka.

Þeir sem vildu halda í samninginn töluðu m.a. um að aðeins væru 9 mánuðir eftir af samningnum og hann tryggði 3% almenna launahækkun 1. maí og rúmlega 7% hækkun lágmarkslauna. Nota ætti tímann til hausts til að móta kröfugerð og undirbúa næstu kjaraviðræður.

Það var þungt hljóð í þeim sem vildu segja upp og sterk krafa um að verkalýðshreyfingin setti fótinn niður í samfélagi misskiptingar. Stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir að taka til sín ávinning af starfi verkalýðshreyfingarinnar sem hefur lagt mikla áherslu á hækkun lægstu launa, en stjórnvöld tekið að stórum hluta til baka með skerðingu bóta. Úrskurðir kjararáðs og hækkanir á launum æðstu stjórnenda banka og Landsvirkjunar urðu auk þess mörgum fundarmönnum tilefni til gagnrýni.

[/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]