Bjarg íbúðafélag hefur opnað fyrir skráningu

17. 05, 2018

Bjarg íbúðafélag hefur opnað fyrir skráningu á biðlista. Reiknað er með afhendingu fyrstu íbúða í júní 2019. Skráðu þig á www.bjargibudafelag.is 

Skráningar sem berast fyrir 31. júlí 2018 fara í pott og verður þeim sem þá hafa skráð sig raðað í númeraröð með úrdrætti. Íbúðir Bjargs eru fyrir fjölskyldur og einstaklinga á vinnumarkaði sem eru undir skilgreindum tekju- og eignamörkum og eru fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB.

Nánari upplýsingar um Bjarg íbúðafélag og hverjir eiga rétt á úthlutun má finna á heimasíðu félagsins www.bjargibudafelag.is

Um Bjarg íbúðafélag

Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarfélag, stofnað af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og því er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgang að íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að danskri fyrirmynd; „Almene boliger“.

Leiðarljós félagsins er að veita leigutökum öruggt húsnæði til langs tíma.