Áherslur ungs fólks í komandi kjarasamningum – ASÍ-UNG ályktar

19. 09, 2018

[et_pb_section fb_built=“1″ _builder_version=“3.0.47″ custom_padding=“0|0px|54px|0px|false|false“][et_pb_row _builder_version=“3.0.48″ background_size=“initial“ background_position=“top_left“ background_repeat=“repeat“ custom_padding=“0|0px|27px|0px|false|false“][et_pb_column type=“4_4″ _builder_version=“3.0.47″ parallax=“off“ parallax_method=“on“][et_pb_text _builder_version=“3.9″]Á fimmta þingi ASÍ-UNG komu ungliðar saman úr verkalýðshreyfingunni um allt land og ræddu sín á milli hvað bera eigi að leggja áherslu á í komandi kjarsamningum. Á þinginu var farið yfir hlutverk stéttarfélaga og þær áherslur sem ungt fólk vill sjá í komandi samningum. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fluttu erindi og tóku svo þátt í pallborðsumræðum ásamt tveimur stjórnarmönnum ASÍ-UNG, Eiríki Þór Theódórssyni og Hafdísi Ernu Ásbjarnardóttur. Miklar umræður sköpuðust varðandi stöðu ungs fólks á vinnumarkaði og er ljóst að fulltrúum finnst að víða megi gera betur til að styrkja stöðu þessa hóps.Þing ASÍ-UNG var haldið föstudaginn 14. september. ASÍ-UNG eru samtök ungs fólks á aldrinum 16-35 ára, innan verkalýðshreyfingarinnar sem sér til þess að hagsmunamál ungs fólks á vinnumarkaði séu ávallt á dagskrá Alþýðusambandsins.Meðfylgjandi ályktun var samþykkt í lok þingsins:

  • Þing ASÍ-UNG ályktar um nauðsyn þess marka skýra stefnu í húsnæðismálum til þess að tryggja ungu fólki húsnæði við hæfi. ASÍ-UNG telur það vera grundvallaratriði að allir hafi möguleika á öruggu búsetuformi sem hentar á viðráðanlegum kjörum.
  • ASÍ-UNG krefst þess að persónuafsláttur verði hækkaður þannig að lágmarkslaun verði skattlaus.
  • ASÍ-UNG krefst þess einnig að aldurstengd launamismunun verði afnumin með öllu enda er hún klárt brot á mannréttindum. Jafnframt gerir ASÍ-UNG kröfu um að ungt fólk eigi sæti við samningaborðið til þess að tryggja hagsmuni þess.
  • ASÍ-UNG leggur ríka áherslu á að vinnueftirlit verði aukið og viðurlög vegna brota á vinnustað verði hert.
  • Þing ASÍ-UNG leggur áherslu á jafnvægi milli einkalífs og vinnu. Brúa þarf bil milli fæðingarorlofs og leikskóla og auka orlofsrétt vegna vetrarfría í skólum.

Ný stjórn ASÍ-UNG var kosin á þinginu og hana skipa:Aðalstjórn:Alma Pálmadóttir- Efling, Gundega Jaunlina- Hlíf, Karen Birna Ómarsdóttir – Aldan, Margret Júlía Óladóttir- FVSA, Eiríkur Þór Theodórsson- Stétt Vest , Sindri Már Smárason- Afl, Ástþór Jón Tryggvason- VLFS, Aðalbjörn Jóhannsson- Framsýn og Margrét Arnarsdóttir- FÍR.Varastjórn:Kristinn Örn Arnarson- Efling, Ólafur Ólafsson- Eining Iðja, Hafdís Erna Ásbjarnardóttir- Einingu Iðja, Birkir Snær Guðjónsson- Afl ogElín Ósk Sigurðardóttir- Stétt Vest.[/et_pb_text][et_pb_image src=“https://www.efling.is/wp-content/uploads/2018/09/asi-ung-thing.jpg“ _builder_version=“3.9″][/et_pb_image][et_pb_text _builder_version=“3.9″]Fulltrúar Eflingar á ASÍ UNG þinginu. Fv. Kristinn Örn Arnarson, Ingólfur Björgvin Jónsson, Þorsteinn Gunnlaugsson, Jamie Mcquilkin, Oddný Ófeigsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar sem var með erindi á þinginu.[/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]