Velsæld á grunni misnotkunar? Gerðubergsfundur Eflingar um brotastarfsemi á vinnumarkaði

23. 10, 2018

Velsæld á grunni misnotkunar? Opinn fundur Eflingar um brotastarfsemi á íslenskum vinnumarkaðiEfling – stéttarfélag boðar til opins fundar í Gerðubergi laugardaginn 27. október næstkomandi um brotastarfsemi á íslenskum vinnumarkaði, þar með talið mansal og önnur gróf réttindabrot. Kynningu flytur María Lóa Friðjónsdóttir, sérfræðingur í vinnustaðaeftirliti hjá ASÍ. Að því búnu munu félagsmenn Eflingar sem lent hafa í kjarasamningabrotum segja frá reynslu sinni. Boðið verður upp á spurningar úr sal.Fundur hefst klukkan 14:30 og er öllum opinn. Boðið verður upp á köku og kaffi í lok fundar sem lýkur eigi síðar en klukkan 16:00. Að venju er boðið upp á ókeypis barnapössun í bóksasafninu í Gerðubergi gegn skráningu á vef Eflingar (sjá eyðublað hér fyrir neðan). Streymt verður af fundinum á Facebook síðu Eflingar. Túlkað verður milli ensku og íslensku á skjá meðan á fundi stendur.