Efling, VR og VLFA vísa kjaraviðræðum til Ríkissáttasemjara

21. 12, 2018

Yfirlýsing vegna vísunar kjaraviðræðna til ríkissáttasemjara

Formenn VR, VLFA og Eflingar á fundi fyrr á árinu.
Lágmarkslaun á íslenskum vinnumarkaði eru 300 þúsund krónur á mánuði samkvæmt kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins. Húsnæðiskreppa og tilfærsla skattbyrði frá þeim ríku yfir á þá efnaminni gerir það að verkum að ekki er hægt að lifa af þessum launum. Efnahagsuppsveifla síðustu ára hefur ekki skilað láglaunafólki ábata og er löngu tímabært að snúa við þeirri öfugþróun.Stéttarfélög verslunarfólks og almenns launafólks standa sameinuð í þeirri kröfu að dagvinnulaun dugi fyrir mannsæmandi lífi. Krafa okkar er um krónutöluhækkanir sem leiði til sanngjarnari skiptingar kökunnar, ekki um prósentuhækkanir og launaskrið.Samtök atvinnulífsins hafa svarað kröfum okkar með gagnkröfu um uppstokkun á vinnutíma og breytingum á grundvallarréttindum launafólks – réttindum sem náðust með áralangri baráttu vinnandi fólks. Tólf tíma vinnudagur var raunveruleiki hér á landi á árum áður. Slíkt verður aldrei liðið aftur á íslenskum vinnumarkaði. Skilgreiningar á vinnutíma eru ávinningur af kjarabaráttu síðustu alda sem aldrei verður fórnað fyrir nafnlaunahækkanir sem geta brunnið upp í verðbólgu.Við höfum gert kröfu um róttækar breytingar á núverandi kerfi, sanngjarnar launaleiðréttingar og boðlegt líf en fáum lítil sem engin svör. Þeir sem vilja tryggja sanngirni og réttlæti á vinnumarkaði eru sakaðir um ábyrgðarleysi og jafnvel öfgar. Eini kosturinn sem boðinn er vinnandi fólki er kyrrstöðusamningar. Enn og aftur er til þess ætlast að láglaunafólk á Íslandi sitji eftir á meðan þeir launahæstu skammta sjálfum sér tugprósenta launahækkanir án þess að blikna.Verkalýðshreyfingin stendur sterk og mun berjast til að ná fram kröfum fólksins um mannsæmandi líf.Við undirrituð teljum að sögulegt tækifæri sé fólgið í breiðri samstöðu stéttarfélaga almenns verkafólks og verslunarfólks um krónutöluhækkanir og hækkun lægstu launa.Við undirrituð teljum að viðræður síðustu vikna við Samtök atvinnulífsins hafi verið árangurslausar. Við teljum afstöðu stjórnvalda skýra vísbendingu um að þau hyggist ekkert gera til að liðka fyrir viðræðum.Við höfum því tekið þá ákvörðun að vísa viðræðum þeirra stéttarfélaga sem við veitum forystu við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VRSólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar – stéttarfélagsVilhjálmur Birgisson, formaður VLFA