Málþing um styttingu vinnuvikunnar

Alda, félag um sjálfbærni og lýðræði, efnir til málþings um styttingu vinnuvikunnar í Hörpu laugardaginn 12. janúar kl 13-16. Markmiðið er að þroska enn frekar umræðuna um styttingu vinnuvikunnar og auka skilning á þeim möguleikum sem hún hefur í för með sér fyrir íslenskt samfélag.Efnt er til málþingsins með stuðningi ASÍ, BRSB, BHM og Eflingar stéttarfélags. Fundarstjóri er Katrín Oddsdóttir.Dagskrá:– Björn Þorsteinsson prófessor opnar málþingið fyrir hönd stjórnar Öldu.- Aidan Harper, New Economics Foundation: Skemmri vinnuvika og lífsgæði, áhrif á náttúruna og samfélagið. Tengsl við aukna framleiðni.- Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB: Styttri vinnuvika – Eftir hverju erum við að bíða? Tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar og ríkisins.- Ragnar Þór Ingólfsson, VR. Stytting vinnuvikunnar, nýr fókus.- Kaffihlé kl. 14:20- Ragnheiður Þorleifsdóttir framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar: Reynslusaga um styttingu vinnudagsins.- Guðmundur D. Haraldsson, Öldu: Vinnustundir á Íslandi í alþjóðlegu samhengi, svolítið um Eflingarskýrsluna- Pallborðsumræður.Guðmundur D. Haraldsson.Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis.Ólafur Þór Gunnarsson, varaformaður velferðarnefndar Alþingis.