Undanþágunefnd vegna verkfallsaðgerða – akstur með fólk með fatlanir sjálfkrafa undanþegið

27. 03, 2019
Ákveðið var að allur akstur með fólk með fatlanir verður sjálfkrafa undanþeginn verkfallsaðgerðum. Bílstjórum sem starfa við slíkan akstur er því heimilt að sinna störfum sínum með óbreyttum hætti.Undanþágubeiðnir skulu sendar rafrænt á netfangið undanthagunefnd@efling.is og innihalda eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn fyrirtækis, kennitala, heimilisfang og staður.
  • Heildarfjöldi starfsmanna fyrirtækis.
  • Fjöldi starfsmanna sem sótt er um undanþágu fyrir.
  • Nöfn, kennitölur og starfssvið starfsmanna sem sótt er um undanþágu fyrir.
  • Rökstuðningur fyrir undanþágubeiðni.
  • Það tímabil sem umsóknin á við um.
  • Nafn, sími og netfang tengiliðs fyrirtækis við undanþágunefnd.