Fræðslustyrkur vegna ríkisborgaraprófs

22. 05, 2019

Frá 1. maí 2019 eiga þeir félagsmenn Eflingar sem vinna hjá Reykjavíkurborg rétt á að fá fræðslustyrk vegna ríkisborgaraprófs.

Almennt er prófakostnaður, skírteinisgjöld oþh. ekki styrkt af starfsmenntasjóðunum og styrkja aðrir sjóðir ekki ríkisborgaraprófið.

Mímir – Símenntun hefur umsjón með skráningu og gefur upplýsingar. Prófið er skilyrði þess að geta sótt um íslenskan ríkisborgararétt.

Um prófið

Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt verður haldið tvisvar á ári, að vori og hausti. Prófið miðast við lokamarkmið í grunnnámi í íslensku fyrir útlendinga (240 stundir), samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Mímis.