Vegna yfirlýsinga framkvæmdastjóra Eldum rétt

Framkvæmdastjóri Eldum rétt, Kristófer Júlíus Leifsson, hefur brugðist við fréttum af skaðabótamáli fjögurra fyrrum starfsmanna gegn fyrirtækinu með útúrsnúningi og rangfærslum. Í janúar síðastliðnum leigði Eldum rétt mennina frá Menn í vinnu ehf, alræmdri starfsmannaleigu, en Efling hefur nú falið lögfræðistofunni Rétti að sækja rétt mannanna gagnvart starfsmannaleigunni og fyrirtækjunum sem skiptu við hana.

Fyrirtæki sem versla við starfsmannaleigur sleppa ekki með því undan skyldum gagnvart starfsfólkinu. Þetta er gert ljóst í lögum um starfsmannaleigur, sem voru uppfærð í fyrra til að herða á þeim skyldum. Kristófer hefur nú ítrekað lýst því yfir að mennirnir hafi unnið stutt hjá honum og þess vegna séu kröfur mannanna ekki viðeigandi. Þetta er málinu óviðkomandi. Í lögum um keðjuábyrgð eru tilgreindar undanþágur ef starfið sem um ræðir á sér stað innan ákveðins lágmarkstímabils, en þær undanþágur eiga ekki við í tilfelli Eldum rétt.

Kröfur verkamannanna voru sendar frá lögfræðistofunni Rétti í apríl til fjögurra fyrirtækja í takt við lög og eðlilega starfshætti. Þrjú þessara fyrirtækja hófu umsvifalaust samtal við Eflingu og gengust við sinni lögbundnu ábyrgð, en Eldum rétt kaus að svara eftir dágóða bið með fremur harðorðu bréfi þar sem allri ábyrgð var vísað á bug, bent á ábyrgðarsjóð launa og mögulegt yfirvofandi gjaldþrot Menn í vinnu ehf. Allt var gert til þess að túlka skyldur Eldum rétt á sem þrengstan hátt. Kristófer reynir nú að drepa málinu á dreif með að tala um að vandamálið hafi verið upphæðirnar, en þær voru ekki gerðar að umræðuefni í fyrrnefndu bréfi, og virðist einfaldlega vera viðleitni til að grugga vatnið nú þegar lögsóknin er til umtals í fjölmiðlum.

Í ljósi þeirra aðstæðna sem rúmensku verkamennirnir voru látnir lifa við vekur það nokkra furðu að þessi harka hafi verið sett í málið af hálfu Eldum rétt, og að Kristófer reyni nú að gera Eflingu, stéttarfélag verkamannanna, ábyrga fyrir að ekki hafi átt sér stað samtal. Kristófer segir að Eldum rétt „hefðu viljað finna raunverulegan grundvöll“ fyrir kröfum starfsmannanna, en þann vilja er ekki að finna í þeirri eindregnu höfnun sem fyrirtækið lét senda lögmönnum Eflingar í maí.

Ennfremur er undarlegt að í höfnunarbréfi Eldum rétt virðist Rúmenunum sjálfum vera kennt um það agandi umhverfi sem Menn í vinnu ehf héldu þeim í, með þeim rökum að ráðningarsamningar sem þeir undirrituðu hafi leyft það. Ákvæði þeirra samninga eru í meira lagi vafasöm, enda er vinnuveitandanum þar gefið einhliða vald til að skuldfæra allt frá húsaleigu til líkamsræktarkorts af launum, fyrirfram. Það vald var svo notað í febrúar með grimmilegum hætti, þegar starfsmönnunum var fyrirvaralaust fleygt úr híbýlum sínum peningalausum, með vísun í fyrrnefndan samning. Að stjórnendur Eldum rétt hafi kynnt sér samninginn og álitið hann eðlilegan kemur á óvart, ekki síst í ljósi sögu starfsmannaleigunnar.

Efling skorar á atvinnurekendur að skipta ekki við starfsmannaleigur, og að reyna ekki að drepa á dreif lögbundinni ábyrgð sinni í slíkum viðskiptum.