Samband íslenskra sveitarfélaga neitar enn að greiða 105.000 kr. innágreiðslu

28. 08, 2019

Efling og Starfsgreinasamband Íslands áttu fund með samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga í morgun þar sem 105.000 kr. innágreiðsla til félagsmanna var meðal þess sem tekið var til umræðu. Efling og SGS lögðu á það þunga áherslu að upphæðin sem ríki, Reykjavíkurborg og nokkrar aðrar stofnanir greiddu sínu fólki 1. ágúst sl. yrði greidd til starfsmanna SÍS núna 1. september.Samninganefnd Eflingar og SGS taldi einboðið að SÍS yrði við kröfunni um innágreiðsluna. Skýr skilaboð samninganefndar SÍS á fundinum voru því mikil vonbrigði.Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar segir þessi viðbrögð SÍS forkastanleg, sérstaklega í ljósi umræðu um ofurlaun bæjarstjóra og annara sveitarstjórnenda sem réttlæta laun sín með vísun í mikla ábyrgð og þess tíma sem fer í að sinna starfsskyldum.„Í ljósi hugtaka eins og ábyrgðar og vinnusemi er áhugavert að velta fyrir sér annars vegar því ábyrgðarleysi sem fólkið innan vébanda Sambands íslenskra sveitarfélaga leyfði sér nú í sumar þegar það tók ákvörðun um að greiða ekki 105.000 kr. innágreiðslu til félagsmanna Eflingar og annarra félaga innan Starfsgreinasambandsins vegna komandi kjarasamninga, ætlaða til þess að létta láglaunafólki biðina eftir þeim launahækkunum sem þegar hefur samist um á almenna markaðnum, og hins vegar ábyrgðina sem láglaunastéttir sveitarfélaganna axla á hverjum einasta degi í störfum sínum. Ábyrgð sem á endanum er svo lítils metin að fólkið með völdin gefur ekkert fyrir hana, þrátt fyrir að þau viti auðvitað að án allra þessara vinnandi handa væru engin sveitarfélög til að stjórna, engin ofurlaun til að skammta sjálfum sér.“Um forsögu málsins má lesa hér.