Jólamarkaður Eflingar – auglýst eftir þátttakendum

22. 10, 2019

Jólamarkaður Eflingar verður haldinn laugardaginn 30. nóvember 2019. Þar gefst félagsmönnum Eflingar kostur á að bóka bás sér að kostnaðarlausu og hafa til sölu handverk sitt eða aðra framleiðslu, t.d. jólakort, kerti, prjónadót eða aðra handavinnu.Hafir þú áhuga á að taka þátt eða vilt fá nánari upplýsingar geturðu haft samband við Magdalenu Kwiatkowska, magdalena@efling.is eða í síma: 764-5138.Umsóknarfrestur er til 25. nóvember.Við hvetjum alla skapandi og framkvæmdaglaða félagsmenn til að hafa samband og kynna hvað þeir hafa upp á að bjóða en athugið að um takmarkað pláss er að ræða og valið verður úr innsendum umsóknum.Jólamarkaðurinn verður haldinn 30. nóvember í húsi Eflingar, Guðrúnartúni 1, 4. hæð. Við ætlum að skapa notalega og skemmtilega jólastemningu. Boðið verður upp á léttar veitingar, tónlist og afþreyingu fyrir börnin.