Opið lengur á miðvikudögum hjá Eflingu

Lengri afgreiðslutími skrifstofu á miðvikudögumSkrifstofa Eflingar í Guðrúnartúni 1 verður til reynslu opin til kl. 18 á miðvikudögum í desember og janúar. Lengdur afgreiðslutími er hugsaður fyrir félagsmenn sem eiga óhægt, vegna vinnu sinnar, með að koma á skrifstofuna á hinum venjubundna afgreiðslutíma skrifstofunnar sem er 8:15-16:00 á virkum dögum.Lengdur afgreiðslutími verður frá 16:00 til 18:00 á miðvikudögum.11. desember 201918. desember 20198. janúar 202015. janúar 202022. janúar 202029. janúar 2020Ekki verður boðin full þjónusta heldur verður sett í forgang að þjónusta félagsmenn sem óska eftir viðtölum við kjaramálafulltrúa. Hægt verður að skila inn umsóknum í fræðslu- og sjúkrasjóð en þó ekki vegna sjúkradagpeninga. Svarað verður í síma og öllum erindum sinnt eftir bestu getu.Árangurinn af verkefninu verður metinn í lok janúar með það í huga að halda því áfram, með nauðsynlegum breytingum eftir því sem við á.